Skoðun

Átak í mennta­málum – skortur á vilja?

Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Átak þarf til þess að bæta stöðu á húsnæðismarkaði. Langvarandi skortur húsnæðis hefur orðið til þess að fasteignaverð hefur hækkað verulega á undanförnum árum og nú er svo komið að mati fjölmargra greiningaraðila að þrengingar í efnahagslífinu verði enn meiri sökum þess ástands. Það er jákvætt að nú skuli vera gerð áætlun um byggingarmagn komandi ára og slík áætlun þarf að ná til áratuga svo vel sé.

Í uppbyggingunni sem framundan er verður mikil þörf fyrir iðn- og tæknimentuðu fólki sem þarf til þess að byggja húsnæðið. Því er ljóst að skólakerfið þarf að útvega fleiri einstaklinga sem hafa klárað formlega menntun í viðkomandi greinum.

Á síðasta ári var 700 umsækjendum vísað frá iðnnámsgreinum í skólakerfinu. Það er eftirsóknarvert að komast í iðn- og tækninám og má þar þakka ýmsu fyrir það. En á sama tíma og við búum við skort á fólki með iðn- og tæknimenntun þá hefur ríkið tekið undir og gripið til þess að ýta undir og auka aðsókn í iðn- og tækninám. Farið var í átak á tímum heimsfaraldurs að auka vægi iðn- og tækninámsins, sem er vel. En þegar aðsókn hefur aukist þá hefur komið í ljós að menntakerfið hefur ekki verið nægilega tilbúið að taka á móti auknum fjölda sem mér skilst að orsakist fyrst og fremst á því að fjármagn skorti, það skorti nemendaígildi sem fjármagnað er af ríkinu. Reiknilíkanið sem notað er segir stopp. „Computer says NO“

Ég heyri að í dag þegar verið er að fara yfir umsóknir í iðn- og tækninám muni fjöldi þess sem vísað verði frá vera enn meiri en í fyrra. Fjöldinn muni mögulega fara yfir 1.000 nemendur!

Þá er spurt, hvað skýrir þessa stöðu á sama tíma og vinnumarkaðurinn öskrar eftir fleiri menntuðum einstaklingum í þessum greinum? Jú svo virðist sem að samdráttur sé í þessum nemendaígildum eða sem sagt fjölda námsplássa sem bjóða megi upp á. Fjölgun í heimsfaraldri sé að valda því að samdráttur verði núna. Það er hægt að finna leiðir til að kennsluhúsnæði dugi til, kennarar eru til staðar þó fjölgun þar sé nauðsynleg til lengri tíma.

Það vantar því fyrst og fremst aukið fjármagn í iðn- og tæknigreinar. Það þarf að fjölga námsplássum sem menntakerfið má fylla. Það vantar raunverulegar aðgerðir strax til að bjóða fólki á öllum aldri að sækja í iðn- og tækninám. Það þarf fjármagn og samstarf menntastofnanna víðsvegar um landið til þess að anna þörfum markaðarins. Þetta þarf að gerast strax.

Höfundur er formaður Rafiðnaðarsambands Íslands.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×