Skoðun

SÁÁ er í góðum málum

Anna Hildur Guðmundsdóttir skrifar

Eftir töluverð umbrot hjá SÁÁ í byrjun þessa árs er eðlilegt að fólk velti fyrir sér hvaða áhrif þau hafi haft á starfsemi samtakanna og hvernig gangi að leysa úr málum sem upp komu.

Formaður SÁÁ sagði skyndilega af sér í lok janúar og kaus aðalstjórn samtakanna mig sem formann í hans stað og Þráinn Farestveit sem varaformann. Stutt rof varð því í forystunni.

Mikill samhugur er í stjórnum SÁÁ og hefur það skapað nauðsynlega ró og festu í starfseminni. Meðferðarstarf SÁÁ gengur sinn vanagang, félagsstarfið er einstaklega blómlegt og landsmenn taka vel í fjáraflanir samtakanna líkt og alltaf áður.

Ágreiningur hefur verið milli Sjúkratrygginga og SÁÁ um fyrirkomulag meðferðarþjónustu samtakanna í heimsfaraldrinum. Sendu Sjúkratryggingar í lok síðasta árs tilkynningu um áætlaða endurkröfu vegna hluta af framlagi ríkisins, á þeim forsendum að framkvæmd þjónustunnar væri ekki í samræmi við ákvæði og gildandi gjaldskrá samninga. Var í því bréfi ekki tekið tillit til ábendinga SÁÁ um að Covid-19 hafði kallað á óhjákvæmilegar breytingar í þjónustunni til að ekki yrði rof á henni. Unnið er áfram að lausn í samtali og samvinnu við Sjúkratryggingar og enginn efi í mínum huga að við náum góðri lendingu.

SÁÁ er í góðum málum hvað sem öllu öðru líður. Sá órói sem var í kringum formannskjör fyrir tveimur árum hefur fyrir löngu hjaðnað. Undanfari þess óróa hafði slæm áhrif á starfsfólk samtakanna og þar með á skjólstæðinga. Þetta er allt að baki og við einbeitum okkur að því meginmarkmiði SÁÁ að hjálpa fólki að takast á við fíknsjúkdóminn.

SÁÁ fagna 45 ára afmæli síðar á þessu ári. Enn þann dag í dag er SÁÁ leiðandi í meðferð við fíknsjúkdómnum hér á landi og má þakka það öflugum frumherjum, sífelldu þróunarstarfi, fagmennsku, þekkingaröflun, þekkingarmiðlun, tiltrú stjórnvalda og stuðningi landsmanna.

Þessi grunnur sem var lagður með kröftugu grasrótarstarfi varð undirstaðan að því að fíknsjúkdómur fékk viðurkenningu sem viðfangsefni heilbrigðis- og velferðarkerfisins.

Öflugt meðferðarstarf SÁÁ mun áfram vera ómissandi hlekkur í heilbrigðisþjónustu við landsmenn.

Höfundur er formaður SÁÁ.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×