Skoðun

Hönnun og nýsköpun – alltumlykjandi allt árið

Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar

HönnunarMars – uppskeruhátíð hönnunar og arkitektúrs á Íslandi – er nýafstaðinn og um þessar mundir er Nýsköpunarvika í fullum gangi. Þessir viðburðir bera vitni um sköpunarkraft og framfaravilja sem einkennir íslenskt atvinnulíf og menningu.

Í víðum skilningi verða hönnun og nýsköpun vart aðskilin, þar sem eitt nærir annað, og sem aðferðafræði er hönnun eitt besta verkfærið sem við höfum til þess að tengja saman sköpunarkraft, tækni og vísindi í þágu fólks og umhverfis.

Frá HönnunarMarsAldís Pálsdóttir / Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Fyrir mannlíf og umhverfi

Leiðarstef í þeim fjölbreyttu verkefnum sem kynnt voru á HönnunarMars í ár voru meðal annars skýr áhersla á aukin lífsgæði, betri nýtingu auðlinda og umhverfissjónarmið. Hátíðin hefur fest sig í sessi sem eitt mikilvægasta kynningarverkefni íslenskrar hönnunar og arkitektúrs bæði innanlands og á alþjóðavettvangi. Fjölbreytileiki viðburðanna staðfestir að íslensk hönnun og arkitektúr eru mikilvægt breytingafl og tæki til nýsköpunar sem nýst getur okkar samfélagi á fjölbreyttari hátt en marga órar fyrir.

Fyrir tilstilli HönnunarMars eru skapaðar einstakar aðstæður til þess að sýna og kynna nýjar aðferðir, og eiga frjótt samtal um framtíðina. Þar hefur starfsfólk Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, og ótal samstarfsaðilar þeirra, unnið þrekvirki við að þróa og móta spennandi hátíð sem höfðar til víðs hóps og hefur sannarlega átt stóran hlut í því að koma íslenskri hönnun rækilega á kortið.

Frá HönnunarMars.Aldís Pálsdóttir / Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Áhrif Hönnunarsjóðs

Um þessar mundir fögnum við líka 10 ára afmæli Hönnunarsjóðs sem var komið á laggirnar til þess að efla þekkingu, atvinnu- og verðmætasköpun á þessum sviðum. Þegar litið er til baka og horft til áhrifa sjóðsins í okkar kvika samfélagi þá getum við verið stolt og bjartsýn. Fyrir tilstilli framlaga sjóðsins hefur mörgum spennandi nýskapandi verkefnum verið hrint í framkvæmd og þau hjól halda mörg áfram að snúast af krafti. Stuðningur úr Hönnunarsjóði er mikilvæg lyftistöng og viðurkenning, og oft fyrsta skref að einhverju stærra. Nú höfum við ákveðið að hækka framlög til sjóðsins, frá og með næsta ári. Með því mun slagkraftur sjóðsins aukast og vonir standa til þess að áhrifa hans gæti enn víðar.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir á HönnunarMars.Aldís Pálsdóttir / Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Vor í lofti

Það er sannarlega vor í lofti fyrir ört vaxandi hönnunarsamfélag hér á landi. Fagstéttir tengdar hönnunar og arkitektúr stækka og fyrirtækjum fjölgar ört. Áhugi á menntun og starfsþróun eykst og til verða spennandi og eftirsóknarverð störf. Ég tel gríðarleg sóknarfæri til verðmæta- og atvinnusköpunar í hönnunargeiranum, þar er mannauður og hugvit sem við getum virkjað til hagsbóta fyrir samfélagið allt, ekki síst með aukinni hönnunardrifinni nýsköpun og þverfaglegu samstarfi.

Hönnuðir og arkitektar mennta sig til að vinna í síbreytilegu samfélagi. Nám þeirra hefur þróast mikið og breyst í takti við nýjar þarfir og verkefni. Aðferðafræðin sem kennd er hér á landi og erlendis byggir á hönnunarhugsun (e. design thinking), og skapandi aðferðum þar sem tekist er á við stærstu áskoranir okkar tíma. Um 500 hönnuðir og arkitektar hafa útskrifast á Íslandi á síðustu 10 árum og a.m.k. 500 aðrir munu bætast í hópinn næsta áratug. Þau eru þjálfuð í að leita umhverfisvænna lausna sem þjóna notandanum og eru einfaldar, skiljanlegar og hagkvæmar með tilliti til gæða, endingar og fjármagns en skapa um leið ánægjulega upplifun.

Hönnun í öndvegi

Við setjum málefni hönnunar í öndvegi á þessu kjörtímabili og í menningar- og viðskiptaráðuneytinu er nú unnið að mótun nýrrar hönnunarstefnu, í góðri samvinnu við hagaðila. Markmið þeirrar vinnu er skýrt; við hyggjumst móta stefnu og aðgerðir sem skila árangri, fagmennsku og gæðum til hagsbóta fyrir íslenskt samfélag. Stefnu sem ætlað er að virkja mannauð í hönnunargreinum til þess að leysa brýn verkefni samtímans og stuðla að sjálfbærri verðmætasköpun. Við höfum allt að vinna að efla íslenska hönnun og arkitektúr, sem fag- og atvinnugrein, útflutningsgrein og mikilvæga aðferðafræði – allt eru þetta leiðir að lífgæðum fyrir samfélagið.

Höfundur er ferðamála- viðskipta- og menningarmálaráðherra.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×