Skoðun

Munu þín börn læra tækni­læsi?

Sara Dögg Svanhildardóttir og Rakel Steinberg Sölvadóttir skrifa

Menntadagur atvinnulífsins fór fram nýverið með yfirskriftinni Stafræn hæfni í íslensku menntakerfi og atvinnulífi. Afar spennandi erindi voru á dagskrá þar sem spjótum var beint að menntakerfinu okkar og spurt hvernig menntakerfið okkar ætlar að mæta þeirri færni sem nú þegar eru gerðar kröfur um í atvinnulífinu, hvar sem við stígum niður fæti. Leik- og grunnskólastig var þar engin undantekning því í raun er það mikilvægast að öllu að hefja þessa færniþjálfun sem allra fyrst til þess að tæknilæsi þjóðar verði að veruleika.

Tæknilæsi er jafnréttismál sem tryggja þarf öllum.

En hvernig ætlum við sem samfélag að efla stafræna tækni ef ekki innan skólakerfisins? Hvernig ætlum við í Garðabæ að haga þessum umbreytingu inn í okkar skólum? Eða er það utan dagskrár? Eigum við ekki að setja tæknilæsi rækilega á dagskrá fyrir þessar sveitarstjórnarkosningar?

Við höfum einfaldlega ekki efni á því að ætla að láta menntun barna og ungmenna mæta afgangi þegar kemur að tækniþróun. Við vitum að skortur á þekkingu og hæfni til að takast á við nýtt, starfrænt umhverfi háir skólasamfélaginu. Kennarar hafa almennt ekki menntað sig sérstaklega í tæknilæsi enda hefur það ekki staðið til boða. Endurmenntun er afar takmörkuð. Ekki síst vegna skorts á fjármagni.

Hins vegar er mikil gróska meðal kennara og menntabúðir í tæknilausnum hafa slegið í gegn, þar sem áhugasamir kennarar hafa stokkið á vagninn. En ekki allir. Aðgengi barna og ungmenna að tækni í skólastarfi og áhersla á tæknilæsi í námi þeirra er því alfarið háð áhuga einstakra kennara og stjórnenda. Og okkar sveitarstjórnarfólks, því allt snýst þetta á endanum um pólitískar ákvarðanir hvernig skattfé íbúanna er varið. En tækniþróun og uppfærsla hennar inn í skólakerfið okkar kostar. Því miður er ekki hægt að þráast við og ætla þessari tæknibreytingu að eiga sér stað innan skólakerfisins okkar án sérstakst fjárhagslegs stuðning.

Svo risastór breyting, sem hefur áhrif á daglegar athafnir okkar, getur ekki mótast af áhuga einstakra kennara. Hana þarf að innleiða í skólakerfið með markvissum og faglegum hætti. Tæknilæsi er jafnréttismál sem tryggja þarf öllum.

Garðabær og tæknimenntun

Garðabær hóf sína vegferð fyrir margt löngu síðan og þótti framarlega á sviði tæknimenntunar þegar forritunarkennsla var tekin inn í skólana. En hvernig hefur þróunin verið? Hvernig hefur sveitarfélagið stutt við þessa framsýnu vegferð?

Ef kennarar fá ekki tækifæri til að afla sér aukinnar þekkingar á sviði stafrænnar tækni er ekki hægt að gera ràð fyrir umbreytingum sem fela í sér nýtingu stafrænna lausna í skólastarfi. Ef enginn er þekkingin elur hún ekki af sér nýja þekkingu. Við þurfum að gera betur. Við höfum kraftinn og viljann í kennarahópnum okkar og megum ekki vera þeim frekari hindrnu. Tökum stór skref, tökum upp þráðinn og gefum í.

Sara Dögg Svanhildardóttir, oddviti Viðreisnar og bæjarfulltrúi í Garðabæ

Rakel Steinberg Sölvadóttir, frumkvöðull og skipar 3. sæti á lista Viðreisnar í Garðabæ




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×