Skoðun

Engin arms­lengd er á milli fjár­mála­ráð­herra og Banka­sýslu

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar

Mikið hefur verið hamrað á því að fjármálaráðherra starfi í armslengd frá Bankasýslu ríkisins, og sömuleiðis hefur verið tekist á um hvort það sé raunin. Ég á sjálfur erfitt með að sjá hvernig ráðherra á að getað starfað í armslengd frá Bankasýslunni þar sem hann, skv. lögum um Bankasýslu ríkisins nr. 88 frá 2009, skipar sjálfur stjórn Bankasýslunnar.

Í bókhaldi eru armslengdar viðskipti (e. Arm‘s length transaction) þau viðskipti sem eiga sér stað milli tveggja ótengdra aðila. Dæmi um slíkt væru viðskipti milli verslunar og birgja sem eru í eigu mismunandi aðila. Í slíkum viðskiptum eru báðir aðilar að reyna hámarka sinn hagnað og eru ekki háðir skipunum frá hinum aðilanum. Oft eiga sér þó stað viðskipti milli tengdra aðila, þ.e. sömu eigendur eiga báða aðila, þar sem það er mikilvægt (t.d. skattalega) að aðilarnir hegði viðskiptum sín á milli líkt og um tvo ótengda aðila væri að ræða. Í slíkum tilvikum er notast við svokallaðar armslengdar reglur, en þær sjá til þess að viðskipti á milli tengdra aðila séu gerð á eðlilegu markaðsverði. Ástæðan fyrir þessu er oftast að ef ekki eru notuð slík armslengdar verð þá getur t.d. birgi í háskattalandi selt verslun í lágskattalandi vörur á sérkennilega lágu verði. Þannig myndi eigandinn, sem á bæði verslunina og birgjann, lækka heildar skattbyrði sína með því að myndi hærri hagnað í lágskattalandinu en lægri í háskattalandinu. Hér er lykilatriði að skilja að birgjanum er ekki treyst til þess að stýra verðum til verslunarinnar sjálfum. Það er of mikil hætta á að birginn sé ekki að reyna hámarka sinn hagnað, og þar með skattskyldu í háskattalandinu, enda stjórnendur birgjans skipaðir af eigendum verslunarinnar sem hagnast meiri á meiri hagnaði í versluninni en minni hjá birgjanum. Svo þá er armslengd búin til með því að neyða birgjann til þess að nota þekkt verð af markaði. Hann er neyddur til að hámarka eiginn hagnað en ekki heildarhagnað verslunarinnar og birgjans saman.

Ef við snúum okkur nú að fjármálaráðherra og Bankasýslunni þá er það svo að fjármálaráðherra skipar stjórn bankasýslunnar. Stjórnin skipar svo forstjóra og þannig koll af kolli. Svo ef fjármálaráðherra skipar stjórnendur Bankasýslunnar og Bankasýslan vinnur svo eftir samþykktum og stefnum fjármálaráðherra, hvar er þá armslengdin? Hvernig er Bankasýslan að starfa alveg óháð fjármálaráðherra? Ég get ekki betur séð en að þetta sé tilfellið af eiganda verslunarinnar að stýra birgjanum. Það er í sjálfu sér ekkert endilega einkennilegt, eitthver þarf að stýra. En það er þá líka eðlilegt að stjórnandinn axli ábyrgð þegar illa fer, enda er ekki að sjá neina armslengd þarna á milli sem fríar hann frá ábyrgð.

Höfundur er doktorsnemi í skattahagfræði.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×