Skoðun

Bankasýslan krossfest

Sigmar Guðmundsson skrifar

Það er svolítið merkilegt að fylgjast með því hvernig ríkisstjórnin hefur varið páskahelginni. Stjórnarforystan hafði tíma til að velta hlutum fyrir sér þar sem síminn var á silent þegar fjölmiðlar hringdu ítrekað. Vikulegur þriðjudagsfundur ríkisstjórnarinnar flæktist heldur ekki fyrir því hann var einfaldlega ekki boðaður, rétt eins og ekkert sérstakt sé á seyði í samfélaginu. En eftir alla þessa páskaíhugun spratt upp einhver hugmyndabastarður sem fer í sögubækurnar sem sérkennilegasta smjörklípa stjórnmálasögunnar. Einni ríkisstofnun var útrýmt til að komast undan pólitískri ábyrgð.

Á stjórnarheimilinu héldu menn það í fúlustu alvöru að um páskahelgina væri hægt að lauga fætur ráðherra á skírdegi, murka lífið úr krossfestri bankasýslu á föstudeginum langa, og að afleiðingin yrði sú að ríkisstjórnin myndi rísa upp frá dauðum á páskadag til þess eins að auglýsa útför bankasýslunnar í fréttatilkynningu á þriðjudag. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.

Allir glaðir? Nei, aldeilis ekki.

Hvað sem mönnum finnst um Bankasýsluna þá þarf það að vera alveg á hreinu að hún starfar ekki í tómarúmi. Hún tók það ekki upp hjá sjálfri sér að selja banka. Hún ein ber ekki ábyrgð á því hvernig til tókst. Fram hefur komið að ráðherranefnd um efnahagsmál, skipuð forsætisráðherra, fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra, var ekki einhuga um það hvernig átti að standa að sölunni. Viðskiptaráðherra sá það fyrir að fyrirkomulagið sem hún studdu sjálf í ríkisstjórn, myndi enda með skelfingu, og hefur kallað eftir pólitískri ábyrgð. Sú ábyrgð liggur að mestu hjá fjármálaráðherra, en auðvitað líka hjá ráðherranefndinni sem viðskiptaráðherra situr sjálfur í.

Ef bankasýslan klúðraði, þá var það vegna þeirrar forskriftar sem fékkst frá ríkisstjórninni. Undan því verður ekki vikist.

Sú staðreynd að hvorki fjármálaráðherra, forsætisráðherra, viðskiptaráðherra, né formaður Framsóknarflokksins, svöruðu ekki ítrekuðum beiðnum fjölmiðla um helgina segir heilmikla sögu um stöðuna á stjórnarheimilinu. Vandræðagangurinn er alger. Vantraustið á milli flokkanna algert.

Enda er lærdómurinn af þessari bankasölu eftirfarandi:

Framsóknarflokkurinn sá það fyrir, að eigin sögn, að salan yrði klúður en ákvað að upplýsa almenning ekki um það fyrr en eftir útboðið. Flokkurinn hefði sem sagt getað afstýrt slysinu en ákvað að gera það ekki.

VG, vinstri sinnaðasti flokkurinn á þingi, er núna með það á afrekalistanum að hafa selt 50 milljarða þjóðareign með afslætti til stórkapítalista. Til að bregðast við gagnrýni úr eigin flokki er ríkisstofnun lögð niður, áður en rannsókn á þætti hennar í sölunni lýkur.

Sjálfstæðisflokkurinn getur nú gumað sig af því að vera eini hægri flokkurinn í heiminum sem hefur afrekað það í miðju einkavæðingarferli að tryggja í sessi eignarhald ríkisins í banka. Þetta klúður verður nefnilega til þess að þessari ríkisstjórn verður ekki treyst fyrir frekari bankasölu í bráð.

Höfundur er þingmaður Viðreisnar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×