Skoðun

Rauðar fjaðrir verða leiðsöguhundar fyrir blinda og sjónskerta

Sigþór U. Hallfreðsson og Þorkell Cyrusson skrifa

Leiðsöguhundar eru gríðarlega öflugt hjálpartæki fyrir blint og verulega sjónskert fólk og veita þeir notendum mikið frelsi og aukið öryggi auk þess sem þeir eru ekki síður góðir félagar og mörg dæmi um að þeir hafi rofið félagslega einangrun fólks og þannig stuðlað að virkari þátttöku blinds og sjónskerts fólks í samfélaginu.

Tólf sérþjálfaðir leiðsöguhundar hafa fengist hingað til lands á undanförnum árum en þörf er á átaki til að tryggja fleiri hunda hingað til lands, bæði til nýrra notanda og svo til að leysa þá hunda af hólmi sem komnir eru á starfslokaaldur. Til þess þurfa blindir og sjónskertir þína aðstoð.

Rauðar fjaðrir og aðrar driffjaðrir góðs samfélags

Blindrafélagið beitir sér fyrir því að tryggja félagsmönnum sínum aðgang að þjálfuðum leiðsöguhundum. Um og yfir 90% þeirra fjármuna sem Blindrafélagið þarf til að halda úti mikilvægri starfsemi og þjónustu er sjálfsaflafé. Stuðningur almennings og samtakamáttur í gegnum hreyfingar á borð við Lions, sem sér um sölu á rauðu fjöðrinni á Íslandi, hafa því verið helsti drifkraftur við fjármögnun mikilvægra hjálpartækja á borð við leiðsöguhunda.

Þátttaka þín og forseta Íslands

Lionshreyfingin og Blindrafélagið hafa tekið höndum saman um átak til að tryggja framboð af leiðsöguhundum í landinu með sölu á rauðu fjöðrinni dagana 31. mars til 3. apríl. Verndari söfnunarinnar er Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, en hann mun kaupa fyrstu fjöðrina við hátíðlega athöfn á Bessastöðum kl. 14:30 í dag.

Brýn þörf fyrir fleiri hunda fyrir blinda og sjónskerta

Í þessari landssöfnun Lionshreyfingarinnar undir merkjum rauðu fjaðrarinnar er það nýmæli að styrkþeginn, Blindrafélagið, kemur mun meira að verkefninu með virkri þátttöku en í fyrri söfnunum, enda er þörfin brýn. Við hvetjum þig að vera með í þessari söfnun og sjá til þess að fleira blint og sjónskert fólk geti öðlast meira sjálfstæði í lífinu með hjálp leiðsöguhunda. Saman byggjum við betra samfélag.

Höfundar eru formaður Blindrafélagsins og fjölumdæmisstjóri Lions á Íslandi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×