Rafíþróttir

Ljósleiðaradeildin í beinni: Fylkir þarf sigur í fallbaráttunni

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ljósleiðaradeildin

Ljósleiðaradeildin í CS:GO heldur áfram og eins og öll þriðjudagskvöld eru tvær viðureignir á dagskrá í kvöld.

Sú fyrri er viðureign Fylkis og Ármanns. Fylkir situr í neðsta sæti deildarinnar og þarf sárlega á sigri að halda til að eiga möguleika á að halda sæti sínu í deildinni. Þetta er næst seinasta umferð mótsins og liðið er tveimur stigum á eftir Kórdrengjum sem sitja í næst neðsta sæti, og fjórum stigum á eftir SAGA esports sem situr sæti ofar.

XY og Vallea mætast svo í síðari viðureign kvöldsins. XY siglir lygnan sjó í fimmta sæti deildarinnar með 16 stig, en Vallea er enn í harðri baráttu við Þór um annað sæti Ljósleiðaradeildarinnar.






×