Skoðun

And­skotans á­hrifa­valdar og dróna­skapur!

Björn Steinbekk skrifar

Nú þegar sér fyrir endann á Covid og ferðaþjónustan gerir sig klára til að manna öll möguleg pláss á hótelum, rútum, veitingastöðum og tengdu er vert að koma inn á hóp fólks, innlent og erlent sem hefur átt góðan þátt í því að markaðssetja Ísland með tilkomu samfélagsmiðla og þar af leiðandi átt þátt í að skapa áðurnefnd störf. Já, mikið rétt, andskotans áhrifavaldarnir eins og sumir í ferðaþjónustunni kalla þá.

Þetta er fólkið sem sendir endalaust tölvupóst, betlandi gistingu og bílaleigubíla svo ekki sé talað um allar fyrirspurnirnar til Icelandair og Play um frítt flug fyrir tags og mentions. Áhrifavaldar eru jafn misjafnir og þeir eru margir en það er óumdeilt að þeir hafa, flestir, áhrif. Ég kýs að kalla þetta fólk sögufólk því í raun er það sagan þeirra, texti með myndefni sem fólk heillast af, skapar hughrif. Þetta er oft fólk sem skrapar saman aur til að ferðast og mynda, með drónum og myndavélum og reynir að sýna heiminum sína sýn að löndin sem það heimsækir. Að færa fólki land, bæ, borg eða sveit, einn Instagram eða TikTok póst í einu.

Persónulega hef ég reynslu af því að kynna landið mitt og finnast ég eiga skilið einhverja umbun fyrir. Drónaskapur minn við eldgosið í Geldingadölum barst fólki um allan heim og fór ég í fjöldann allan af viðtölum við erlenda fjölmiðla og miðlaði efni mínu, oft án endurgjalds til stórra miðla um allan heim. Áætlað virði umfjöllunar um gosið erlendis er meira en 50 milljarðar. Samt er það svo að ég hef aldrei heyrt frá Visit Reykjanes sem notið hefur þess að hafa eldgos á svæðinu, fyrr en í vikunni þar sem ég er beðinn um að útbúa myndefni, frítt, fyrir þau að birta, til að fagna því að eitt ár er liðið frá því að gosið hófst.

Já, drónaskapur og áhrifavaldar hefur áhrif á væntanlega ferðamenn, í bland við allt það góða starf sem ferðaþjónustufyrirtæki og hið opinbera skilar. Þess vegna stakk ég upp á því við ráðherra viðskipta og menningar að Ísland yrði fyrsta landið í heimunum sem tæki upp samskonar endurgreiðslu og tíðkast vegna framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis. Að áhrifavaldar sem hafa tiltekið fylgi og viðbrögð á sínum miðlum fái að lágmarki 25% endurgreiðslu á öllum kostnaði við ferðalag sitt til landsins. Með þessu er hægt að stórefla umfjöllun sem næg er fyrir og taka í leiðinni í burtu hluta af þessu óþolandi betli andskotans áhrifavaldana sem eru að selja íslenska drauminn.

Höfundur flýgur stundum drónum og ráðleggur við markaðsmál.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×