Skoðun

Kær­komið frelsi

Birta Karen Tryggvadóttir skrifar

Afnám allra sóttvarnartakmarkana eru kærkomin kaflaskil. Loks getum við byrjað að lifa og njóta þess að vera til án takmarkana, því ber að fagna ákaft. En í öllum frestuðu veislunum sem nú fara að hellast yfir okkur, allar í einu, megum við ekki gleyma að draga lærdóm af þeim takmörkunum sem voru á okkur sett. Þau hafa, þrátt fyrir nauðsyn sína, kennt okkur hversu dýrmætt frelsið er okkur öllum; að geta hitt hvort annað, faðmað, haft gaman og búið til minningar saman. Þetta megum við sem lifðum þennan tíma, aldrei aftur taka sem sjálfsögðum hlut.

Ég vona líka virkilega að þessi lærdómur skili sér í aukinni virðingu fyrir frelsinu ásamt skilningi á því að jafnvel hin minnsta frelsisskerðing kemur niður á lífsgæðum okkar. Því er ávallt rík ástæða til að halda uppi þeirri ófrávíkjanlegri kröfu á stjórnvöld að gífurlegir almannahagsmunir (eins og heimsfaraldur) verði að búa að baki öllum frelsisskerðingum á líf okkar, stórum sem smáum.

Ég ásamt fleira ungu fólki bjóðum okkur þess vegna fram til stjórnarsetu í Heimdalli. Félagi ungmenna sem hefur barist fyrir frelsinu sleitulaust í 95 ár. Það er okkar von að við hljótum stuðning til þess að blása lífi og krafti í starf þessa sögulega og mikilvæga félags, til að halda mikilvægi frelsisins kröftuglega á lofti og veita stjórnvöldum ærið aðhald.

Nú þegar sóttvarnaraðgerðir stjórnvalda renna sitt skeið er mikilvægt að þau þurfi enn að svara því hvenær aðrar hömlur þess á okkar líf verða afnumdar. Hvenær fáum við að versla eðlilega með löglegar neysluvörur líkt og áfengi? Hvenær fá aðrir en handhafar leyfa, sem ganga í erfðir að skutla fólki fyrir greiðslu? Hvenær fáum við að versla okkur verkjalyf utan takmarkaðra opnunartíma apóteka? Hvenær munum við byrja að taka á neysluvanda sem heilbrigðismáli en ekki lögreglumáli?

Fyrir sumum eru þessi mál ómerkileg en fyrir öðrum eru þetta skerðingar á lífsgæðum og réttindum. Því skal aldrei tekið af léttúð. Stjórnvöld verða að geta rökstutt þessar áframhaldandi hömlur á líf okkur, en það gerist ekki nema að einhver krefji þau um það. Það höfum við í Heimdalli alltaf gert og munum áfram gera af krafti, fái ég til þess umboð að leiða félagið.

Kosið verður í dag milli 16 og 20 og milli 16 og 19 á föstudaginn. Öll á aldrinum 15-35 ára sem eru skráð í flokkinn geta kosið, hægt að skrá sig hér: https://xd.is/minar-sidur/

Höfundur leiðir lista Birtu og Kára til stjórnarsetu í Heimdalli, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×