Skoðun

Uppbygging nýrra hverfa - Urriðaholt

Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar

Uppbyggingu fylgja fjárfestingar og vöxtur kallar á uppbyggingu innviða. Félagslegir innviðir eru jafnmikilvægir og götur og brýr – og við getum gert betur. Gæðin sem felast í því að geta sótt leik- og grunnskóla sem næst heimili barnsins eru mikil, það einfaldar líf okkar, er umhverfisvænna og tengir saman börn og fjölskyldur sem búa í sama hverfi. Ákjósanlegt er að systkini geti verið í sama skóla ef það hentar fjölskyldunni. Leikskóli í nálægð við lítil börn er lykilatriði í sterku samfélagi. Við þurfum að huga betur að uppbyggingu skóla samhliða uppbyggingu nýrra hverfa. Leik- og grunnskólar eru líka skipulagsmál.

Félagslegir innviðir – gerum betur

Í Garðabæ höfum við þegar hafið undirbúning að öðrum áfanga Urriðaholtsskóla og útboð fyrir þriðja áfanga er í undirbúningi. Áætluð verklok eru haustið 2023. Á næsta ári verður nýr leikskóli við Holtsveg tekinn í notkun. Haldin var samkeppni um hönnun leikskólans og teikningar liggja nú fyrir. Útboð á byggingu skólans verður svo á næstu vikum. Starfsemi er hafin á Mánahvoli við Vífilsstaði og í undirbúningi er að bjóða leikskólapláss við Kauptún en starfsemi getur hafist þar í haust.

Á Urriðaholti mun rísa íþróttahús og sundlaug. Endanleg hönnun liggur ekki fyrir en hefja þarf undirbúning sem fyrst. Gott samtal og samráð við íbúa Urriðaholts er mikilvægt. Þar geta verið spennandi tækifæri til að auka þjónustu við íbúa með aðgengi að heitum pottum og gufu.

Flýtum framkvæmdum og uppbyggingu

Leik- og grunnskólar ásamt íþrótta- og sundaðstöðu eru mikilvægir hlekkir í öflugum félagslegum innviðum og þeir skipta máli þegar bjóða á góða þjónustu. Mikil fylgni er á milli góðrar þjónustu og ánægju íbúa. Flýta þarf framkvæmdum og uppbyggingu þannig að við getum boðið fyrsta flokks þjónustu í Urriðaholti.

Við þurfum einnig að bæta þjónustu fyrir eldri bæjarbúa í Urriðaholti. Huga þarf að uppbyggingu og félagsstarfi því nauðsynlegt er að íbúar á öllum aldri hafi aðgengi að góðri þjónustu í nærumhverfi sínu.

Tengjum Garðabæ og aukum öryggi

Gott skipulag hefur ekki aðeins áhrif á það að við komumst örugglega á milli staða heldur hefur það líka áhrif á líðan okkar. Góð tenging á milli hverfa er jafn mikilvæg og tenging við ósnortna náttúru. Bætum tengingar milli bæjarhluta, í miðbæinn og við skóla- og íþróttasvæði. Tengjum Urriðaholtið betur við Vífilsstaðahraun, Heiðmörk og Urriðavöll með göngu- og hjólastígum. Með betra stígakerfi og bættum samgöngum aukum við öryggi íbúa, jafnt barna sem fullorðinna.

Urriðaholtið er lifandi og skemmtilegt hverfi, meirihluti íbúanna er undir fertugu og hlutfall barna er hátt. Þetta er fagnaðarefni. Unnið er að uppbyggingu á opnum leiksvæðum og er leiksvæðið Miðgarður einstaklega spennandi. Veitinga- og kaffihús rísa ásamt fjölbreyttri verslun og þjónustu. Þetta er mikilvægt enda viljum við öfluga hverfiskjarna sem nýtast íbúum og auka lífsgæði. Góð þjónusta, hvort sem hún er á vegum sveitarfélagsins eða annarra, gerir líf okkar betra.

Höfundur er formaður bæjarráðs Garðabæjar og sækist eftir 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Hin­segin réttindi til fram­tíðar

Bjarndís Helga Tómasdóttir,Kristmundur Pétursson,Vera Illugadóttir,Jóhannes Þór Skúlason,Hannes Sasi Pálsson,Hrönn Svansdóttir,Sveinn Kjartansson skrifar

Sjá meira


×