Skoðun

Boris Johnson og laun bankastjóra Landsbankans – Slæm fyrir stöðugleika

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar

Boris Johnson hefur undanfarið fengið miklar skammir fyrir að hafa að brotið sóttvarnarreglur og farið í ófá partý á meðan samlandar hans þurftu að halda sig heima vegna sóttvarnaaðgerða. En af hverju eru Bretar að æsa sig yfir því að Boris fór að skemmta sér? Einn maður er ekki að fara hafa mikil áhrif á útbreiðslu Covid í Bretlandi. Nei, samstaða þjóðarinnar er mikilvægari segja Bretar. Það er betri að skamma Boris, jafnvel losna við hann, heldur en að taka sénsinn á því að aðrir feti í fótspor hans. En hvað tengist þetta bankastjóra Landsbankans?

Laun stjórnenda eru fordæmisgefandi

Kjarninn greindi nýlega frá því að laun bankastjóra Landsbankans hefðu hækkað ríkulega seinustu ár. Árið 2021 fékk bankastjórinn 7% launahækkun en alls hafa launin hækkað um 82% á tímabilinu 2018-2021, eða frá 2,1 m.kr á mánuði upp í 3,8 m.kr. Ég ætla ekki að deila á fjárhæðirnar sjálfar, læt nægja að benda þessa grein sem ég skrifaði um slíkt, en ég má til með að deila á að ríkið átti sig ekki á hvað slíkar launahækkanir eru hrikalega slæmt fordæmi á tímum þar sem verkalýðsfélögum er sagt að halda að sér höndum í nafni stöðugleika (sem er alltaf). Rétt eins og með sóttvarnarbrot Boris Johnson þá hefur launahækkun eins stjórnenda gott sem engin bein áhrif á ríkiskassann eða stöðugleika. En það er alveg ljóst að launahækkanir hjá fólki sem þegar hefur það margfalt betra en flest allir aðrir landsmenn eru ekki til þess fallnar að mynda samstöðu um hófsamar launakröfur.

Ég vil taka fram að það er ekkert skrítið að bankastjórinn vilji launahækkun, hver vill það ekki. Það er hinsvegar skrítið að ríkið, eigandi bankans, veiti launahækkunina. Það er einnig mjög skrítið að ríkisstjórnin, Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð, Seðlabankastjóri og aðrir sem eru duglegir að segja láglaunafólki að hafa sig hæg taki ekki allar svona fréttir alvarlega og deili harðlega á þær. Þessir aðilar sem tala fyrir stöðugleika í landinu vita vel að eitt slæmt fordæmi getur stefnt því öllu í hættu. Svo ef þeim er alvara með tali sínu, ef þeim er sannarlega annt um stöðugleika en ekki bara að ætla öðrum ábyrgð sem þau sjálf vilja ekki sér og sínum, þá verður að deila miklu harðar á aðgerðir þeirra sem eru á toppi pýramídans. Annars má öllum vera ljóst að tal þeirra um stöðugleika eru innantóm orð sem engin í undirstöðum pýramídans mun hlusta á.

Höfundur er viðskiptafræðingur.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×