Skoðun

Sérhagsmunagæsla VG fyrir stórútgerðirnar

Eyjólfur Ármannsson skrifar

Fyrsta verk sjávarútvegsráðherra VG í nýrri ríkisstjórn var reglugerðarbreyting um að skerða þorskveiðiheimildir til strandveiða næsta sumar um 1.500 tonn. 

Á Alþingi 25.01 2022 lagði ég fram þessa spurningu: „Mun hæstvirtur sjávarútvegsráðherra leiðrétta þann niðurskurð á þorskveiðiheimildum til strandveiða sem ráðherrann ákvað með reglugerðarbreytingu 23. desember og nam 1.500 tonnum?“ 

Í svörum sínum sínu réttlætti ráðherra ákvörðun sína með því að minna væri til skiptanna skv. veiðiráðgjöf. „Ég mun sem ráðherra sjávarútvegsmála ekki hvika frá því að fara að vísindalegri ráðgjöf um nýtingu fiskstofna.“

Staðreyndin er hins vegar sú að strandveiðar við Íslandsstrendur ógna alls ekki fiskstofnum, aflatölurnar eru einfaldlega það lágar. Ef við skoðum málefnaleg sjónarmið á bak við skerðingu strandveiða, ætti meðalhófið að segja okkur að þær ættu að vera frjálsar. Það er hrein firra að halda því fram að þessar lágu aflaheimildir ógni fiskstofnum. Að vísa í almenna skerðingu eða halda því fram að þessi 1.500 tonn muni bjarga fiskstofnum Íslands er bara hlægilegt. Hins vegar munar hinar dreifðu sjávarbyggðir Íslands mikið um þessa skerðingu, auk þess sem ráðherra, sem væri í raun annt um sjálfbærni, sæi sóma sinn í að taka umhverfissjónarmið inn í dæmið.

Forgangsverkefni VG að þjarma að hinum smærri

Ákvörðun sjávarútvegsráðherra um skerðingu þorskveiðiheimilda í strandveiðum er í hróplegu ósamræmi við stefnuskrá flokksins og hástemmd loforðin í kosningabaráttu Vinstri grænna sl. haust. Boðskapur VG í Norðvesturkjördæmi var þessi: „Nýta má strandveiðar til að efla jafnrétti og stuðla að nýliðun í sjávarútvegi. Við viljum efla fjölbreytt útgerðarform með öflugum strandveiðum og byggðatengdum aflaheimildum og koma í veg fyrir mikla samþjöppun svo byggðirnar blómstri.“ Ákvörðun ráðherrans er því hrein og klár svik við þá 1.900 kjósendur sem kusu VG kjördæminu, að stórum hluta vegna þessara loforða, og afhjúpa blekkingarleik VG.

Ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur er hins vegar auðskiljanleg þegar skrif sérhagmunagæslu stórútgerðarinnar og kvótaeigenda eru skoðuð. Einbeittur vilji þeirra kemur glögglega fram í athugasemdum fulltrúa þeirra við frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (atvinnu- og byggðakvóti). Þar segir: „Samtökin [SFS] hafa ítrekað lýst þeirri afstöðu að hætta eigi strandveiðum og fella aflamark, sem tekið hefur verið af öðrum og ráðstafað til þessara veiða, undir aflahlutdeildarkerfið.“ Þar á bæ er ekki litið á strandveiðar sem atvinnuveiðar og virðingin fyrir þeim engin. „Samtökin leggja þunga áherslu á að aflamagn til strandveiða verði ekki aukið með neinum hætti á kostnað atvinnuveiðanna.“ Hræðslan við strandveiðarnar er með ólíkindum, og það er ekki af umhyggju SFS fyrir vernd fiskistofna.

Sjálfbærustu veiðarnar

Strandveiðar hafa reynst hinum dreifðu sjávarbyggðum dýrmætar. Þær valda minnstu raski í hafrýminu, hafa minnsta kolefnissporið og hámarka verðmæti aflans. Þær hafa líka verið tækifæri fyrir ungt fólk að hefja veiðar. Smábátaútgerð hefur spornað gegn samþjöppun og komið í veg fyrir að fjölbreyttur sjávarútvegur legðist af á landsbyggðinni. Íbúar sjávarbyggðanna eiga skilið að fá að nýta sjávarauðlindina þannig að fjölskyldur geti lifað af fiskveiðum. Sá réttur verður einungis tryggður með eflingu strandveiða en ekki ómarktækum fagurgala rétt fyrir kosningar.

Höfundur er þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×