Skoðun

13/12 Styrktar­sjóður

Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar

Fyrir fjórum árum varð frúin hálfrar aldar gömul og slegið var upp 100 kvenna stelpupartýi þar sem eðal stjörnur stigu á stokk og allir skemmtu sér konunglega. Ekkert skorti konuna og gjafir voru því afþakkaðar en í staðinn var gamall draumur gerður að veruleika;

13/12 Styrktarsjóður var stofnaður og töluvert fé safnaðist. Hugmyndin kviknaði í vinnunni en í starfi mínu sem fæðingalæknir hef ég allt of oft kynnst konum sem hafa lítið á milli handanna og eru í erfiðri stöðu. Það eru því miður ekki allir á okkar góða landi sem hafa nóg til hnífs og skeiðar. En það nístir inn að beini þegar um er að ræða þungaðar konur eða nýbakaðar mæður og börn þeirra sem eiga ekkert og vantar allt. Ekki pening fyrir lyfjum eða sjúkraþjálfun, komast kannski ekki í mæðraverndina í tímann sinn sem er nauðsynlegur fyrir heilsu þeirra og barnsins sem er væntanlegt. Nýfædd börn þurfa mikla umönnun fyrstu dagana, mánuðina og árin. Maðurinn er kannski sú dýrategund sem er hvað mest ósjálfbjarga við fæðingu og lifir ekki af nema að fá næringu, umönnun, ást og kærleika. Oft hefur verið sagt að það þurfi heilt Þorp til að koma barni à legg. Fátækt er því miður staðreynd víða og stundum virðist erfitt að komast út úr þeim aðstæðum. Saklaus börn eiga ekki að líða fyrir erfiðan fjárhag foreldra sinna.

Því var 13/12 Styrktarsjóður stofnaður og hugmyndin er að styrkja mæður og börn þeirra sem skortir aðstoð. Starfsfólk kvennadeildar Landspítala finnur í störfum sínum þá sem eru í vanda og þurfa aðstoð. Þessi mál fara ekki hátt því fátækir hafa ekki marga talsmenn og hrópa ekki neyð sína á torgum. Nú þegar hafa margar konur og börn þeirra notið peningagjafa og aðra aðstoð sem þörf er à í hvert sinn.

Margir einstaklingar hafa látið fé af hendi rakna til að styrkja sjóðinn og einnig hafa félagasamtök og fyrirtæki lagt málinu lið. Þess vegna er 13/12 Styrktarsjóður ennþá til og það ber að þakka.

Nú þegar 9 dagar eru í að daginn taki að lengja á okkar fallega landi og myrkrið fer senn að hörfa stendur jólaundirbúningur sem hæst á mörgum heimilum. Þà er svo mikilvægt að muna eftir okkar minnsta bróður, þeim sem allt skortir og er jafnvel nýkominn í þennan heim.

Sum okkar vilja ekki gjafir,vantar ekkert og eiga nóg, þá er upplagt að leggja góðu málefni lið. Það er nefnilega sælla að gefa en þiggja. Þannig lifir góð hugmynd eins og 13/12 Styrktarsjóður sannar sjá FB síðu 13/12 Styrktarsjóður.

Njótið aðventu og jólahátíðar með því að láta gott af ykkur leiða.

Höfundur er fæðinga- og kvensjúkdómalæknir.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×