Skoðun

Stuðningur við fjöl­­skyldur fólks með heila­bilun

Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar

Það er margt sem breytist hjá fólki sem fær heilabilun, einföldustu hlutir geta orðið flóknir og minnið bregst sem oft skapar óöryggi. Það er mikilvægt að fólk fái strax stuðning og hjálp til að fóta sig og að þjónusta sé miðuð út frá hverjum einstakling. Það skiptir líka miklu að huga að fjölskyldu þeirra sem fá heilabilun því þau eru líka að uplifa nýjan veruleika. Mikilvægt er að nýta alla þá möguleika sem til eru til að styðja við lífsgæði fólks og vellíðan og að þjónusta samfélagsins aðlagi sig að þörfum fjölskyldna.

Þjónustan heim

Undanfarin ár hefur það verið stefna stjórnvalda að færa þjónustu sem fólk kann að þurfa á að halda þegar það eldist eða veikist í auknu mæli heim til fólks. Í Reykjavík er félagsleg stuðningsþjónusta og heimahjúkrun samþætt þannig að sem heildstæðust þjónusta skapist. Með nýjum reglum um stuðningsþjónustu sem samþykktar voru á dögunum mun mat á þjónustuþörf verða einstaklingsmiðaðra en markmiðið með því er að leggja til hliðar áður notaða matskvarða og meta frekar í samtali við notanda þjónustunnar hvað hann vil eða þarf. Auk stuðningsþjónustu þess er þjónusta á borð við matarsendingar, félagsstarf, akstur, endurhæfing og hjúkrunar og nú nýjast er teymi sem kallað er Selma. Það samanstendur af hjúkrunarfræðingum og læknum og hefur það að markmiði að efla heilbrigðisþjónustu heim til þeirra sem fá heimahjúkrun. Þetta hefur fækkað komum á bráðamóttöku og aukið lífsgæði fólks. Velferðartæknilausnir geta stutt við sjálfstætt líf og hefur Reykjavíkurborg verið að prófa sig áfram með slíkt í Velferðartæknismiðju.

Aðstandandi

Að vera náinn aðstandanadi manneskju með heilabilun krefst alltaf einhverra breytinga og það getur verið krefjandi verkefni eftir því sem sjúkdómurinn þróast. Stundum er um að ræða algjöra kúvendingu, jafnvel þannig að maki eða barn ber skyndilega alla ábyrgð á velferð og lífi ástvinar síns. Stefna Reykjavíkurborgar er að standa betur með þessum fjölskyldum þar og því munum við setja í gang tilraunaverkefni til tveggja ára þar sem við metum hvernig viðð getum best gert það. Verkefnið gengur út á að sérstakir starfsmenn heimaþjónustu veita stuðning inni á heimilinu, eitt til tvö skipti í viku, í 2-3 klukkustundir í senn, t.d. um kvöld og helgar í samræmi við þarfir heimilisins umfram þá þjónustu sem annars er í boði. Um leið og einstaklingurinn sem er með heilabilun fær stuðning gefst aðstandendum kostur á að fara út af heimilinu og sinna sínu, því það er einfaldlega mikilvægt. Með því móti væri verið að mæta þörf sem áður hefur ekki verið hægt að mæta með markvissum hætti af heimaþjónustu. Þetta er mikilvægt skref sem við erum að stíga og ég er sannfærð um að það mun sanna mikilvægi sitt og festast í sessi.

Höfundur er formaður Velferðarráðs Reykjavíkur og varaformaður Samfylkingarinnar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×