Skoðun

Gjaldþrota stefna

Auður Önnu Magnúsdóttir skrifar

Kastljós er mikilvægur umræðuþáttur þar sem stóru þjóðmálin eru oft tekin fyrir og viðmælendur geta yfirleitt búist við að vera spurðir gagnrýninna spurninga þegar þeir standa fyrir máli sínu.

Það var því mjög miður að Kastljós skyldi bjóða forstjóra Landsvirkjunar í þáttinn í síðustu viku til þess eins að taka við hann gagnrýnislaust drottningaviðtal, þar sem hann fékk nánast mótbárulaust að útlista þeirri sýn sinni að fórna eigi íslenskri náttúru án þess þó að útskýra með skýrum hætti hver ávinningurinn á að vera. Sérstaka athygli vakti að sami fréttamaður var í hlutverki spyrilsins og gekk ekki fyrir svo löngu hart ekki bara að sóttvarnarlækni heldur líka forstjóra Landspítala þegar þeim var boðið í Kastljós. Munurinn á þeim viðtölum og silkihanskameðferðinni á forstjóra Landsvirkjunar var sláandi.

Nú þegar selja íslenskir orkuframleiðendur 80 prósent raforkunnar, sem hér er framleidd á kolefnishlutlausan, hátt til stóriðju. Öll önnur starfsemi, heimili stofnanir, samtök og svo framvegis, nota minna en 20 prósent raforkunnar. Að auka þessa raforkuframleiðslu mun ekki draga úr kolefnisspori Íslendinga, og það sem meira er, reynslan sýnir okkur að engar vísbendingar eru um að hún dragi sérstaklega úr kolefnisspori á heimsvísu.

Eitt stærsta mál okkar tíma eru umhverfismálin og hvernig við samþættum góða umgengni og virðingu fyrir náttúrunni áframhaldandi hagsæld og velferð. Margir vilja grípa til skyndilausna á því sviði og skylda fjölmiðla til þess að rýna þær og afhjúpa galla þeirra er rík.

Stóra verkefni Íslands er að nýta alla þessa gríðarlegu raforkuframleiðslu með skynsamlegri hætti. Þegar kísilverið á Bakka var gangsett fékk það heimildir til að losa gróðurhúsalofttegundir út í andrúmsloftið sem auka losun Íslands um 8 prósent ári. Beinn kostanaður ríkissjóðs af Bakka hefur verið metinn upp á 4,2 milljarða króna. Tap íslenskra lífeyrissjóða og banka af Bakka stendur í 11,6 milljörðum. Þetta er gjaldþrota stefna.

Flest eru sammála um að íslensk náttúra er mjög verðmæt og einstök. Verndun náttúrunnar er almennt séð góð loftslagsaðgerð, skapar störf og verndar lýðheilsu

Forsvarsfólk Kastljóss er hvatt til þess að annað hvort hleypa ekki einhliða umræðu, sem drifin er af þröngum hagsmunum, að í þættinum eða að kynna sér málefnin til hlítar þannig að þáttastjórnendur geti spurt gagnrýnna spurninga.

Höfundur er framkvæmdastjóri Landverndar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×