Rafíþróttir

Rafíþróttasamtök Íslands kenna almenningi League of Legends | Þriðji þáttur

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Þriðji þáttur fjallar um hlutverk hvers spilara fyrir sig.
Þriðji þáttur fjallar um hlutverk hvers spilara fyrir sig. Mynd/RÍSÍ

Í tilefni þess að Heimsmeistaramótið í League of Legends er haldið hér á landi um þessar mundir, hafa Rafíþróttasamtök Íslands framleitt stutt kennslumyndbönd til að kynna almenningi fyrir leiknum.

Í síðasta þætti fórum við yfir það hvernig leikurinn spilast og hvernig annað liðið sigrar og heimili allra keppna, kortið Summoners rift. 

Í þessum þætti ætlum við að kafa ögn dýpra inn í hvert hlutverk hvers liðsfélaga er og fá innsýn inn í hvað það er sem gerir League of Legends svona spennandi.

Klippa: Lærum League of Legends - Þáttur 3

Í fjórða og síðasta þættinum sem birtist á morgun ætlum við að fjalla um auka verkefnin sem liðið getur leyst til að styrkja sig í baráttunni um höfuðstöðvarnar. Við ætlum að kynnast drekunum, Herald og Baron.






×