Rafíþróttir

LNG og DetonatioN FocusMe tryggðu sér sæti í riðlakeppni heimsmeistaramótsins

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
DetonatioN FocusMe er fyrsta japanska liðið til að komast í riðlakeppni heimsmeistaramótsins í League of Legends.
DetonatioN FocusMe er fyrsta japanska liðið til að komast í riðlakeppni heimsmeistaramótsins í League of Legends. Wojciech Wandzel/Riot Games Inc. via Getty Images

Seinasti dagur undanriðla heimsmeistaramótsins í League of Legends fór fram í dag. Sex leikir voru spilaðir, en LNG og DetonatioN FocusMe tryggðu sér efsta sæti undanriðlana, og þar með öruggt sæti í riðlakeppninni.

Í fyrsta leik dagsins mættust LNG og Infinity. LNG hafði mikla yfirburði frá fyrstu mínútu og unnu að lokum öruggan sigur, en sigurinn tryggði þeim efsta sæti undanriðils A, og þar með sæti í riðlakeppni heimsmeistaramótsins.

PEACE og RED Canids áttust við í öðrum leik dagsins, en fyrir leikinn voru liðin í harðri baráttu um þriðja sæti undanriðils A. Eins og í fyrsta leik dagsins varð ekki gríðarlega spenna, en PEACE hafði yfirhöndina frá upphafi, og sigurinn tryggði þeim þriðja sæti undanriðilsins.

Í næsta leik mættust DetonatioN FocusMe og Beyond Gaming. DetonatioN FocusMe þurfti á sigri að halda, ásamt því að treysta á hagstæð úrslit úr leik Cloud9 og Unicorns of Love, til að eiga möguleika á efsta sæti undanriðils B.

Liðsmenn DetonatioN FocusMe mættu einbeittir til leiks og kláruðu nokkuð öruggan sigurm, en fjórða, og mögulega seinasta viðureign dagsins, var einmitt viðureign Cloud9 og Unicorns of Love.

Cloud9 frá Bandaríkjunum þurfti að vinna til að tryggja sér efsta sæti riðilsins, en Unicorns of Love hafði hingað til tapað öllum sínum leikjum. Eftir nokkuð jafnar fyrstu tíu mínútur fóru Unicorns of Love að síga fram úr, og unnu að lokum óvæntan sigur gegn bandaríska liðinu.

Sigur Unicorns of Love þýddi að þeir voru nú jafnir Beyond Gaming í fjórða sæti undanriðilsins, og Cloud9 og DetonatioN FocusMe voru jöfn í fyrsta sæti. Því þurftu liðin að spila innbyrgðis til að skera úr um úrslit undanriðils B.

Beyond Gaming tryggði sér fjórða sæti riðilsins með sigri gegn Unicorns of Love, og eftir virkilega spennandi viðureign gegn Cloud9 tryggðu DetonatioN FocusMe sér öruggt sæti í riðlakeppni heimsmeistaramótsins.

DetonatioN FocusMe og LNG fara því beint í riðlakeppnina, en liðin í öðru, þriðja og fjórða sæti þurfa að spila stutta útsláttarkeppni um seinustu tvö lausu sætin. Liðin í öðru sæti fara beint íúrslitaviðureginir, en liðin í þriðja og fjórða sæti mætast innbyrgðis í undanúrslitaviðureignum.

Unandúrslitin fara fram á morgun, en klukkan 11:00 eigast Beyond Gaming og Galatasaray við, og klukkan 16:00 eru það RED Canids og PEACE sem etja kappi. Vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram, en hægt verður að fylgjast með öllum leikjunum á Stöð 2 eSport.








×