Skoðun

Hugsað um ójöfnuð og menntun

Flosi Eiríksson skrifar

Friðrik Jónsson, formaður BHM, var í viðtali á Sprengisandi á Bylgunni í gær. Sjónarmið sem hann viðraði þar um launamun í landinu og hvernig hann væri réttlætanlegur vakti upp hjá mér ýmsar spurningar og vangaveltur. Fyrst kannski það sjónarmið að menntun, og þá væntanlega háskólamenntun, eigi skilyrðislaust að vera metin til launa. Eiginlega án þeirra starfs sem viðkomand gegnir. Annað er að þetta sjónarmið virðist grundvallast á þeirri hugsun að þeir sem hafa möguleika á að mennta sig séu að gera það fyrir okkur hin, fyrst og fremst, leggi á sig langt og strangt nám með tilheyrandi kostnaði, og þurfi að fá það „endurgreitt“ í formi launa, auk þess sem þau séu „svo óheppin“ að þau eru styttra á vinnumarkaði og því séu ævitekjur þeirra minni. Þriðji punkturinn er síðan að háskólamenntað fólk skili margfeldi út í samfélagið þegar það kemur aftur heim að loknu námi, og þau eigi að njóta þessi í launum.

Það kom mér á óvart hversu þröngt sjónarhorn Friðriks var í þessu viðtali, og vissulega er hann að tala máli félagsmanna sinna en samt. Menntun er að verða sífellt fjölbreyttari, úreldist hraðar og fólk aflar sér hennar með fjölbreyttari hæti yfir lengri tíma. Í því speglast breytt samfélag og breyttir atvinnuhættir. Gamla hugmyndin um háskólamanninn sem kemur heim frá námi í útlöndum í gott starf á Íslandi, er kannski að úreldast, og alveg örugglega sú að þau ein skili margfeldi út í samfélagið. Það vekur líka upp býsna margar spurningar ef við ætlum fyrst og fremst að meta gildi starfa og framlags til samfélagsins eftir lengd háskólamenntunar – og það eigi bara að vera viðurkennt og sjálfsagt að þeir sem sem eru ófaglærðir og vinna til dæmis í umönnunarstörfum, mest konur, eigi að dragast enn frekar aftur í launakjörum. Það er reyndar alveg þvert á það sem markmiðið var í síðustu kjarasamningum, þar sem áhersla var lögð á að hækka lægstu launin umfram önnur. En auðvitað er gott að fá þetta sjónarmið BHM fram með svona afgerandi hætti nú í aðdraganda kjarassamninga.

Það er líka skrýtið að heyra klifað á þessari ævitekjuklisju – að ófaglært fólk, sem oft hefur unnið vinnu sem er líkamlega erfið, sé sérstaklega heppið að hafa „fengið“ að vera svona lengi á vinnumarkaðanum, annað en það ,,fórnfúsa“ fólk sem átti kost á eða gat menntað sig. En hugum líka að því að mesta aukning örorku er hjá fólki sem hefur verið lengi í líkamlega erfiðum og einhæfum störfum. Í þessari framsetningu Friðriks endurspeglast líka hugsun og mat á gildi starfa og mikilvægi sem væri þarft að endurhugsa.

Ég held að við eigum að stefna að því sameiginlega að fjölbreytt menntun, störf og reynsla sé metin að verðleikum og tryggja meiri jöfnuð í samfélaginu á sem flestum sviðum. Til þess þurfum við mörg að þora að endurhugsa hugmyndir um gildi starfa, samhengið við menntun og framlag til samfélagsins.

Höfundur er framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×