Skoðun

Frétta­blaðið leið­rétt

Einar S. Hálfdánarson skrifar

Fréttastjóri Fréttablaðsins rökstyður aðild að Evrópusambandinu og finnst ekki mikið til veigamestu röksemda andstæðinganna koma. Hún tínir hins vegar til viðbótarrök fyrir aðild. Þar sé allt svo ódýrt og maturinn góður. „Við kaupum kirsuberjabox á 100 kall á meginlandi Evrópu en á 1.000 kall hér heima og spyrjum engra spurninga.“ Hér ræktum við engin kirsuber. En óhætt er að fullyrða að búlgarskur launþegi er lengur að vinna fyrir fiskinum á diskinn en íslenskur. Og raunar flestu öðru. Verðlag er nefnilega mjög mismunandi milli ríkja ESB. Mig langar nefna sum veigamestu rökin gegn ESB draumsýn kirsuberjakaupenda. Afsal fiskimiðanna ætti samt eitt og sér að duga sem gagnrök.

Vextir og gjaldmiðlar

Hér á landi er misskilningur útbreiddur á eðli vaxta og styrk gjaldmiðla.

  • • Fyrirtæki eru nettólántakendur, en almenningur nettólánveitendur. Lágir vextir færa sem sé fé frá almenningi til eigenda fyrirtækja.
  • • Því styrkari sem efnahagur ríkis er, þeim mun hærri vextir að öðru jöfnu. Áhættumat hefur einnig áhrif á vextina. Hóflegir vextir eru þannig fylgifiskur trausts efnahags og stöðugs stjórnarfars.
  • • Sú einstæða staða er uppi að eigendur evra þurfa að borgar vexti fyrir að eiga evrur. Þeirri furðuskoðun er haldið á lofti hér að þetta sé styrkleikamerki. Hvergi annars staðar myndi nokkur láta sér detta slíkur málflutningur í hug.
  • • Vextir eru að sjálfsögðu mismunandi milli landanna á evrusvæðinu þrátt fyrir sömu mynt. Upptaka evru tryggir ekki sömu vaxtakjör og í Þýskalandi, hvorki fyrir ríki né aðra lántakendur.
  • • Hægt er að gera vaxtaspá til framtíðar með því að skoða kúrfur um fasta vexti. Markaðurinn spáir neikvæðum vöxtum um langa framtíð á evrusvæðinu!
  • • Kína borgar sparifjáeigendum hóflega vexti af ríkisskuldabréfum. USA nokkru minni. Sparendur í Evrópu og Japan þurfa og hafa alllengi þurft að borga með sér. Þeir sem lofa slíkt ástand þurfa að fara á byrjendanámskeið í fjármálum. – Líka bankahagfræðingar í framboði til þings.
  • • Lágir vextir leiða til þjóðhaglega óhagkvæmra fjárfestinga og hækkandi eignaverðs, jafnvel eignabóla. Þannig verða íbúðir t.d. dýrari en ella. Það er sem sé hrein bábilja að lágir vextir séu sérstaklega góðir fyrir ungt fólk. Vaxtagreiðsla einfaldlega lækkar og afborgun hækkar. Einkum á þetta við hér þar sem framboði á lóðum er handstýrt til að skapa lóðaskort.

Stöðugt gengi evru; óstöðugt gengi krónu?

  • Bandarískur dollari er aðalútflutningsmynt Íslands, langtum mikilvægari en evra og aðrar myntir.
  • Gengishreyfingar krónu hafa gegnum tíðina ekki verið meiri en gengishreyfingar evru gagnvart dollar. Hvers vegna að taka upp mynt sem ekki hentar hagkerfinu betur en króna og fórna til þess ómældum, raunverulegum verðmætum?

Höfundur er hæstaréttarlögmaður og löggiltur endurskoðandi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×