ÍBV nálgast sæti í efstu deild Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 31. ágúst 2021 19:23 Eyjamenn eru með eins stigs forystu á Kórdrengi í öðru sæti Lengjudeildarinnar. MYND/@ÍBV.FC ÍBV vann í dag mikilvægan 1-0 sigur þegar að liðið heimsótti Þór frá Akureyri í Lengjudeild karla í knattspyrnu í dag. Eyjamenn eru enn í harðri baráttu um sæti í efstu deild á næsta tímabili, en Þórsarar eru ekki enn búnir að hrista falldrauginn af sér.
Bæði lið fengu ágætis færi í fyrri hálfleik, en hvorugu liðinu tókst þó að koma boltanum í netið og staðan því 0-0 þegar gengið var til búningsherbergja. Þórsarar byrjuðu seinni hálfleikinn betur, en það voru þó Eyjamenn sem voru fyrri til að brjóta ísinn. Breki Ómarsson slapp þá einn í gegn og kláraði vel framhjá Daða Frey Arnarssyni í marki Þórs. Þetta reyndist eina mark leiksins og það voru því gestirnir frá Vestmannaeyjum sem fögnuðu 1-0 sigri. ÍBV er nú með 38 stig í öðru sæti deildarinnar, stigi á undan Kórdrengjum í þriðja sætinu. Eyjamenn hafa þó spilað tveim leikjum minna og því eru þeir í góðri stöðu til að tryggja sæti sitt í Pepsi Max deildinni á næsta tímabili. Þórsarar sitja hinsvegar í tíunda sæti deildarinnar með 20 stig, níu stigum fyrir ofan fallsævðið. Þróttur R. getur enn náð þeim að stigum, en nú þegar aðeins þrír leikir eru eftir verður staða Þórsara að teljast nokkuð örugg.
Fótbolti Lengjudeild karla ÍBV Þór Akureyri Mest lesið Gagnrýnir CrossFit: Flýja alla ábyrgð og láta aðra sjá um kostnaðinn Sport Fær meira fyrir hálftíma ræðu en fyrir að spila heilt tímabil Körfubolti Arne Slot: Hættuleg helgi fyrir Liverpool Enski boltinn „Ef þeim líkar ekki maturinn geta þeir dullað sér úr“ Körfubolti Arnar og Freyr ekki efstir á óskalista Óskars Hrafns Fótbolti „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ Handbolti Launaði greiðann og gaf liðsfélaganum sigurinn Formúla 1 Dagskráin í dag: Jólamánuðurinn hefst á allskonar Sport Ætlaði að ná hundraðasta sigrinum en endaði upp á spítala Sport „Ég þarf smá útrás“ Handbolti Fleiri fréttir Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Sjá meira