Skoðun

Fátækleg hugmyndafræði

Halldóra Mogensen skrifar

Fátækt er afleiðing ákvarðana sem stjórnvöld taka hverju sinni. Ákvarðana sem viðhalda kerfislægri fátækt.

Skerðingar og lágar bætur viðhalda fátækt. Háir skattar af lágum launum, vanfjármagnað menntakerfi, húsnæði á uppsprengdu verði og refsistefna í vímuefnamálum viðheldur fátækt. Samþjöppun auðs og eigna í höndum fárra viðheldur fátækt. Að fólk hafi ekki aðgang að hollum mat, þaki yfir höfuðið og viðeigandi fatnaði viðheldur fátækt. Að fólk hafi ekki frelsi til að ákvarða framtíð sína óháð efnahag viðheldur fátækt.

Hugmyndin sem þrífst á fátækt 

Hugmyndafræði viðheldur fátækt. Hugmyndafræði sem tilbiður samkeppni og ræktar hana sem lýsandi einkenni mannlegra samskipta. Hugmyndafræði sem endurskilgreinir fólkið í landinu sem neytendur og lýðræðið sem kaup og sölu á vörum. Hugmyndafræði þar sem markaðurinn er heilagur og ávinningur er aðeins skilgreindur í krónum og aurum.

Samkvæmt ofangreindri hugmyndafræði eru tilraunir til að takmarka samkeppni skaðlegar frelsinu. Skattar og reglugerðir verða að vera í lágmarki. Opinbera þjónustu ber að einkavæða. Ójöfnuður er dyggð, verðlaun fyrir skilvirkni sem skapar mikinn auð á toppnum sem sullast svo niður og auðgar samfélagið allt. Tilraunir til að skapa jafnara samfélag eru beinlínis í andstöðu við það sem er nánast orðin trúarbrögð og þar af leiðandi siðferðislega rangt. Markaðurinn á að tryggja að allir fái það sem þeir eiga skilið.

Hin ríku sannfæra sig um að þau hafi eignast peningana sína vegna eigin verðleika og hunsa tækifærin sem þau höfðu fram yfir aðra; svo sem menntun, efnahag og stuðningsgetu foreldra. Fátækt fólk byrjar að kenna sjálfum sér um mistök sín þrátt fyrir að hafa litla stjórn á aðstæðum sínum og litla möguleika á að sækja sér þau tækifæri sem þörf er á til að betrumbæta líf sitt.

Tími nýrra hugmynda 

Fátækt er einkenni skaðlegrar hugmyndafræði. Við upprætum ekki fátækt án þess að bera kennsl á og tækla undirliggjandi mein. Fátækt er ekki skömm einstaklingsins sem lifir við hana. Fátækt er skömm samfélagsins og stjórnmálafólks sem viðheldur henni. Ábyrgðin er okkar allra að rýna í samfélagsgerðina með gagnrýnum augum og opnum hug og kjósa nýja nálgun, því nú er tími nýrra hugmynda. Nú er tími breytinga.

Höfundur er þingmaður Pírata.




Skoðun

Skoðun

Hin­segin réttindi til fram­tíðar

Bjarndís Helga Tómasdóttir,Kristmundur Pétursson,Vera Illugadóttir,Jóhannes Þór Skúlason,Hannes Sasi Pálsson,Hrönn Svansdóttir,Sveinn Kjartansson skrifar

Sjá meira


×