Skoðun

Ný framtíð

Haraldur Ingi Haraldsson skrifar

Ég skipa oddvitasæti Sósíalistaflokksins í Norðausturkjördæmi. Ég er bæði stoltur af þeim heiðri og trausti sem vér er veitt en einnig tek ég því af auðmýkt og undirstrika að stjórnmálamenn eiga að vera þjónar ekki herrar.

Öll mín fullorðinsár – síðustu 4 áratugir hafa einkennst af þeirri miklu samfélagsbyltingu sem kennd er við nýfrjálshyggju eða fjármálakapítalisma. Það þýðir að samfélagið allt er stillt inná gróðasókn þar sem eina hlutverk fyrirtækja er að færa eigendum og hluthöfum sem mestan arð í og því háttarlagi fylgir tillitsleysi við umhverfi sitt og samfélag.

Þetta er eyðandi og eyðileggjandi kerfi sem framleiðir fáa miljarðamæringa en eyðir velferðarkerfi almennings, skapar fátækt og ójöfnuð.

Þetta var ekki svona.Við þekkjum tíma þegar við áttum gjaldfrjálst heilbrigðiskerfi um allt land og konur gátu fætt börn sín í heimabyggð.Víða um heim voru húsnæðismál leyst með stórverkefnum á sviði félagslegra íbúðarbygginga og í nokkrum mæli hér líka. Félagslegt bankakerfi sem fjárfesti í raunhagkerfinu var til.Ekki það rænulausa brask og bólukerfi sem er sköpunarverk bankanna í dag. Samvinnuhreyfingin var sterk og hún hélt auðnum í heimabyggð og var lýðræðislega uppbyggð og svo framvegis.

Svona aðferðir vill Sósíalistaflokkurinn nota og sníða að nútímanum og þeim stóru vandamálum sem blasa við í dag eins og loftslagsmálum, síauknum ójöfnuði og óréttlæti

Efnahagskerfi sem hannað er til að skila eigendum fjármagns og stórfyrirtækja hámarksgróða á sem stystum tíma er augljóslega ekki að taka á stórum vandamálum á þann rótæka hátt sem til þarf. Þess vegna er grundvallar atriði að taka upp nýtt efnahags- og félagskerfi. Samhyggju í stað sérhyggju, sósíalisma. Þá er hægt að leggja í þær rótæku breytingar sem skapað geta nýja og betri framtíð.

Núna þegar gengið er til kosninga 25. september hlýtur spilling stjórnmálastéttarinnar að vera ofarlega í huga. Skoðanakannanir um fjölmörg stærstu mál samfélagsins sýna okkur að þjóðarviljinn nær ekki inn fyrir múra Alþingis. Þar sitja stjórnvöld sem framkvæma, kosningar eftir kosningar, þveröfuga stefnu.

Ég vil berjast fyrir því með Sósíalistaflokknum að færa þjóðarviljann inn á Alþingi og afnema forréttindi stjórnmálastéttarinnar sem komin eru út í algera öfga.

Höfundur er oddviti Sósíalistaflokksins í Norðausturkjördæmi. 




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×