Skoðun

Gleðilega Hinsegin daga, kæra þjóð!

Sara Dögg Svanhildardóttir skrifar

Þessa vikuna fögnum við fjölbreytileikanum í allri sinni dýrð og dásemd með Hinsegin dögum.

Á þessum tíma árs nýti ég tækifærið og þakka fyrir frelsið og viðurkenninguna sem íslenskt samfélag hefur veitt mér sem lesbíu og öðru hinsegin fólki. Um leið er það mér ótrúlega mikilvægt að velta fyrir mér stöðu baráttunnar og minna mig á að það er ekki allt í höfn.

Við fáum fréttir af ofbeldisverkum í garð hinsegin fólks í löndum, ekki svo fjarri okkur og gerum okkur grein fyrir því að það á sér stað bakslag, þegar kemur að réttindum hinsegin fólks. Því þurfum við að vera á tánum og gera hvað við getum til að standa vörð um þau réttindi sem hafa áunnist. Við þurfum líka að vera vakandi fyrir þeim brotalömum, sem við sem samfélag erum að fást við.

Mannréttindabarátta hinsegin fólks skiptir okkur öll máli

Hver er hinn íslenski veruleiki í mannréttindabaráttu hinsegin fólks? Hvar stöndum við? Höfum við náð raunverulegum skilningi í öllum kimum samfélagsins? Og ef ekki, hvers vegna er það svo? Þetta eru spurningarnar sem við þurfum að vera að spyrja okkur.

Árið fyrir covid tók ég þátt í pallborði á hinsegin viku framhaldsskóla. Viku sem var undirlögð af alls kyns hinsegin uppákomum, fræðslu jafnt sem menningu. Pallborðið var afar vel sótt og fram fór mjög gagnleg umræða um mikilvægi sýnileikans. Í gleðinni sem ríkti yfir því hvernig til tókst verð mér því brugðið að heyra áhyggjutón yfir því að einn hópur ungmenna hafi sýnt dagskrá vikunnar lítinn sem engan áhuga. Þátttaka íþróttastráka var dræm og áhugaleysið áþreifanlegt.

Við þurfum að gera betur

Þessar áhyggjur hafa setið í mér. Við vitum það öll sem viljum að hinsegin einstaklingar hafa átt erfitt með að standa með sjálfum sér innan íþróttahreyfingarinnar og hefur þetta verið vandi á heimsvísu. Fjöldi opinberra hinsegin ólympíufara segja sína sögu.

Ég hef hvatt sérstaklega til þess að talað sé fyrir aukinni fræðslu meðal íþróttafélaganna í mínu sveitarfélagi. Einnig að unnið sé að því að tryggja með öllum tiltækum ráðum öryggi og vellíðan hinsegin barna og ungmenna í fjölbreyttu og öflugu íþróttastarfi. En betur má ef duga skal.

Í tilefni Hinsegin daga langar mig til þess að hvetja íþróttahreyfinguna til dáða. Og að sveitarfélögin geri ríka kröfu til hreyfingarinnar um að taka mikilvægi fræðslu og viðurkenningu í garð hinsegin fólks alvarlega. Svo alvarlega að íþróttastrákarnir verði alvöru þátttakendur en leyfi sér ekki að horfa undan. Íþróttastrákarnir verða fullorðnir og hafa jafn mikil áhrif á samfélagið og við hin og mannréttindabarátta hinsegin fólks þarf á strákunum okkar að halda eins og öðrum.

Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Garðabæjarlistans.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×