Skoðun

Konur í landinu fá hrós dagsins

Halla Þorvaldsdóttir og Valgerður Sigurðardóttir skrifa

Í gær, þann 1. júlí 2021, bárust þau tíðindi að heilbrigðisyfirvöld hefðu ákveðið að flytja rannsóknir á leghálssýnum aftur til Íslands eftir að þær voru fluttar til Danmerkur í janúar. Krabbameinsfélagið fagnar þessari ákvörðun, sem er stórt skref í þá átt að vinda ofan af þeim vandræðum sem uppi eru varðandi leghálsskimanir. Ákvörðunin mun á endanum draga úr vantrausti kvenna og stytta biðtíma eftir niðurstöðum verulega.

Flutningur rannsóknanna til Danmerkur var að mati Krabbameinsfélagsins algerlega ónauðsynlegur.

Einungis sex mánuðir eru liðnir síðan rannsóknirnar voru alfarið gerðar hér á landi. Nauðsynleg þekking og búnaður kann því að vera enn til staðar. Ef raunverulegur áhugi og metnaður er fyrir því að flytja rannsóknirnar frá Danmörku og hefja þær á ný hér á landi getur það verið auðvelt í framkvæmd.

Ákvörðunin er mjög gott fyrsta skref. Enn vantar hins vegar mjög mikið upp á að konur í landinu fái skýrar upplýsingar um þær breytingar sem gerðar hafa verið á skimunum og að þjónusta, eftirlit og upplýsingagjöf sé gagnsæ og skilvirk.

Viðvarandi vandræði eftir flutning skimananna hafa valdið miklu óöryggi og vanlíðan hjá fjölda kvenna og aðstandenda þeirra. Allt kapp þarf að leggja á að endurvekja traust þeirra. Konur í landinu og fjöldi fagfólks hefur með mjög eindregnum hætti sýnt að þeim stendur ekki á sama um skimanir heldur láta sig málin varða. Ákall kvenna er gríðarlega sterkt eins og sést á fjöldahreyfingu á samfélagsmiðlum og fjölmiðlaumræðu.

Þátttaka í skimunum jókst verulega frá haustinu 2018 og hélst þannig út árið 2020, ef horft er framhjá áhrifum Covid-19. Með lækkun komugjalds má búast við stóraukinni mætingu kvenna – en til að svo megi verða þarf að laga ákveðin atriði strax.

Um leið og við gleðjumst yfir þessu fyrsta skrefi í átt að kerfi sem virkar, verðum við að muna að bráðnauðsynlegt er að koma á góðri upplýsingagjöf, lifandi samtali og upplýstu samráði við konur í landinu um þeirra eigin heilsu. Markmið með skimununum er að Ísland haldi sig í fremstu röð varðandi árangur gegn leghálskrabbameini. Til þess þarf traust og tiltrú kvenna, þátttaka þeirra í skimunum er forsenda árangurs.

Konur á Íslandi bíða og mikið er í húfi. Nú er lag að greikka sporið af alvöru og láta verkin tala.

Halla Þorvaldsdóttir er framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins og Valgerður Sigurðardóttir er formaður Krabbameinsfélagsins. 




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×