Skoðun

Að láta verkin tala - kristaltærir valkostir í næstu kosningum

Svavar Halldórsson skrifar

Sjálfstæðisflokkurinn hefur fest sig rækilega á síðustu vikum sem kyndilberi alvöru lýðræðis á Íslandi. Fjölmenn prófkjör flokksins hafa borið ríkulegan ávöxt með framboðslistum þar sem hlutur kvenna er sérstaklega glæsilegur. Víðsýni, skynsemi, ráðdeild, sjálfbærni og mannúð eru leiðarstef í málflutningi þeirra frambjóðenda sem best hefur gengið og bera áherslum grasrótarinnar og flokksins vitni.

Lýðræði eða baktjaldamakk

Á sama tíma loga aðrir flokkar í illdeilum eða stilla upp á framboðslista í bakherbergjum. Sú mynd af íslenskum stjórnmálum sem birst hefur kjósendum undanfarnar vikur gerir valið á kjördag einfaldara fyrir marga. Í Sjálfstæðisflokknum vinnur stétt með stétt að því að byggja upp betra samfélag á frelsi og mannúð. Vilji kjósendur byggja öflugt velferðarkerfi á blómlegu atvinnulífi og fjölbreytt mannlíf á virku lýðræði – þá er valið kristaltært.

Ryk og blekkingar

En það vilja því miður ekki allir stjórnmálaforingjar að kjósendur hafi skýra lýðræðislega valkosti eða hafi eitthvað um það að segja hverjir veljast til forystu. Þessir sömu handvöldu foringjar kasta líka ryki í augu kjósenda og láta í veðri vaka að næstu kosningar snúist um eitthvað allt annað en raunin er. Sama hvernig hin pólitísku spil eru stokkuð, þá er ekki nokkur leið að næsta ríkisstjórn verði mynduð um inngöngu Íslands í Evrópusambandið eða útgöngu úr NATÓ. Orðagjálfur breytir þar engu.

Kosið um störf og sjálfbærni

Næstu kosningar snúast um tvö mál. Í fyrsta lagi hvort Ísland ætlar að halda áfram á þeirri vegferð að vinna bug á kreppu og atvinnuleysi með raunverulegri verðmætasköpun. Hvort hlúa eigi að frjálsu og arðbæru atvinnulífi, efla innlenda framleiðslu og nýsköpun. Í öðru lagi snúast næstu kosningar um hvort Ísland ætlar að sýna metnað í umhverfismálum, verða leiðandi í sjálfbærni á grundvelli skynsamlegrar auðlindanýtingar og taka alvöru græn skref. Næstu kosningar snúast um láta verkin tala.

Höfundur er sérfræðingur í matarmenningu, stefnumótun og markaðsmálum.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×