Réðst á starfsmann veitingahúss Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 29. mars 2021 06:34 Lögregla handtók manninn sem grunaður er um að hafa ráðist á starfsmann veitingahúss í miðbæ Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm Laust eftir klukkan hálfníu í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um líkamsárás á veitingahúsi í miðbæ Reykjavíkur.
Að því er segir í dagbók lögreglu veittist maður í annarlegu ástandi að starfsmanni á veitingastaðnum. Manninum hafði ítrekað verið vísað út af staðnum vegna brota á sóttvarnalögum og hafði hann síðan ráðist á starfsmann staðarins með höggum og spörkum. Maðurinn var í tökum þegar lögregla kom á vettvang og handtók hann. Þegar hann var fluttur á lögreglustöðina hótaði hann lögreglumönnum lífláti og sparkaði í einn lögreglumann. Var maðurinn vistaður í fangageymslu en við vistun fundust ætluð fíkniefni á honum. Þá fór lögreglan í eftirför á Vesturlandsvegi við Árbæinn skömmu fyrir klukkan þrjú í nótt. Bíllinn sem lögregla elti var ekki á númerum og ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum. Stuttu síðar stöðvaði bíllinn og fór ökumaðurinn þá í aftursætið. Par var í bílnum og voru þau bæði handtekin grunuð um akstur undir áhrifum fíkniefna og akstur svipt ökuréttindum. Um klukkan sex í gærkvöldi var síðan maður í annarlegu ástandi handtekinn í Vesturbænum grunaður um líkamsárás og þjófnað.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Kosningavaktin: Landsmenn kjósa sér nýtt þing Innlent Kanónurnar sem eru að hverfa Innlent Lokatölur í Reykjavík suður: Fyrrverandi borgarstjóri og ritstjóri á þing Innlent Lokatölur úr Reykjavík norður: Stórsigur Samfylkingarinnar Innlent „Afhroð vinstrisins er rosalegt“ Innlent Tárin streymdu þegar María Rut mældist inni Innlent Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sigur Flokks fólksins Innlent Ungur maður og spenntur fyrir framtíðinni Innlent „Ég byrja harður og svo er ég bara grillaður í restina“ Innlent „Ég get ekki hugsað mér að fleiri börn lendi í honum“ Innlent Fleiri fréttir „Mjög skýrt ákall um breytingar“ segir Kristrún um stjórnarmyndun Orðlaus yfir sigrinum: „Þetta er með ólíkindum“ „Þjóðin er að refsa stjórnarflokkunum grimmilega“ Nú reynir á konurnar þrjár Formenn flokkanna í Sprengisandi „Afhroð vinstrisins er rosalegt“ Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sigur Flokks fólksins „Ég byrja harður og svo er ég bara grillaður í restina“ Reyndi að brjótast inn með exi Lokatölur úr Reykjavík norður: Stórsigur Samfylkingarinnar Lokatölur í Reykjavík suður: Fyrrverandi borgarstjóri og ritstjóri á þing Kanónurnar sem eru að hverfa Ungur maður og spenntur fyrir framtíðinni Tárin streymdu þegar María Rut mældist inni Flokkurinn verði að líta inn á við Stefnir í að flokkunum fækki um tvo Flokkur fólksins í gríðarlegri sókn í Norðvesturkjördæmi Vísbending um að þetta séu „jarðskjálftakosningar“ Samfylkingin langstærst í kjördæmi Kristrúnar Stefnir í að VG þurrkist út af þingi Gríðarlega mikið fylgi sem dettur niður dautt Ljóst að þetta yrði brekka fyrir Framsókn Sjálfstæðisflokkur og Samfylking ná bæði fjórum inn í Kraganum „Ég veit ekki hvort ég er að koma eða fara“ Merkir hægribylgju en ekki vonbrigði Glaður maður en býst við batnandi tölum Samfylkingin og Flokkur fólksins bæta miklu við sig Sagði sínu fólki að tala ekki illa um aðra flokka Trúir því að fólk sé að detta VG megin í kjörklefanum Vegabréfið fór með atkvæðinu í kjörkassann Sjá meira