Skoðun

Persónuárásir

Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar

Það verður lítið hlé á árásum á mig vegna fyrri starfa minna fyrr á tíð sem hæstaréttardómari. Tilgangurinn er að selja almenningi þá hugmynd að ég hafi verið sérstakur verndari kynferðisbrotamanna. Ekkert er fjær sanni. Ég hins vegar beitti lagareglum við meðferð mála gegn öllum sem ásakaðir voru fyrir refsiverða háttsemi. Það er eins og margir telji að þeim reglum eigi ekki að beita í málum sem varða kynferðisbrot. Þá eigi geðþóttinn að ráða.

Nú gerðist það að Tobba Marinós ritstjóri DV skrifaði grein á Vísi þar sem hún sakaði mig um að hafa misbeitt dómsvaldi til að losa mann úr farbanni sem hafði verið sakaður um kynferðisbrot gegn henni. Þetta er auðvitað fjarstæða. Um var að ræða erlendan sakborning sem komst ekki heim til sín meðan farbannið hér á landi var í gildi. Í fyrri ákvörðunum Hæstaréttar hafði verið lögð áhersla á að málinu gegn manninum yrði hraðað meðan hann væri sviptur frelsi sínu með farbanninu og tímalengd þess miðuð við að það tækist. Sat ég í dómi sem staðfesti farbann yfir honum á þessari forsendu. Ekki hafði verið farið eftir ábendingum Hæstaréttar í því efni. Svo kom málið aftur til réttarins með kröfu um framlengingu á þessari frelsisskerðingu.

Af tilliti til aðila í málinu vil ég ekki fjalla hér um sakarefnið. Ég segi aðeins að við þessar aðstæður varð að taka afstöðu til þess enn á ný hvort kröfum laga fyrir farbanninu væri ennþá fullnægt. Ég taldi ekki að svo væri og rökstuddi afstöðu mína í sératkvæði mínu. Maðurinn var síðar sakfelldur fyrir brotið en varð ekki kvaddur til að fullnusta dóminn, þar sem hann hafði horfið til síns heima. Þetta lá auðvitað ekki fyrir þegar farbannið var fellt úr gildi. Þeir sem þurftu að úrskurða um það nutu ekki þeirra forréttinda að vita um niðurstöðu dómsmálsins, þar sem málið var ódæmt. Í forsendum dómsins yfir manninum er að finna yfirferð yfir ýmis gögn sem þar var fjallað um en lágu ekki fyrir þegar úrskurðað var um farbannið. Réttmæti þess úrskurðar verður þess vegna ekki metið á grundvelli þeirra gagna.

Ég má nú sæta persónulegum árásum fyrir meðferð mína á dómsvaldi mínu meðan ég var dómari. Þetta virðist vera gert til að koma pólitísku höggi á dómsmálaráðherra fyrir að hafa fengið mér verkefni, þar sem þessar meintu ávirðingar mínar koma ekkert við sögu. Kannski ákærendur mínir telji sig vaxa af þessu framferði?

Höfundur er lögmaður.


Tengdar fréttir

Ástæðan fyrir því að dæmdur nauðgari þarf ekki að sitja af sér

Mikið hefur verið rætt um ráðningu Jóns Steinars Gunnlaugssonar, lögmanns og fyrrverandi hæstaréttardómara, í ráðgjafastarf við dómsmálaráðuneytið. Á Jón að veita ráðgjöf varðandi endurbætur á réttarkerfinu, þá sérstaklega með styttingu málsmeðferðar í huga.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×