Skoðun

Við Píratar tökum Foss­vogs­skóla­málið al­var­lega

Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Mygla í húsnæði er grafalvarlegt mál. Ég þekki það af eigin reynslu. Systir mín varð alvarlega veik vegna myglu á heimili sínu og endaði í raun með að missa allt sitt. Heimilið, innbúið, eigurnar sínar, fötin sín. Hún þurfti að henda öllu gömlu sem hún vildi geyma og missti þar með minningarnar. Hún missti heilsuna og starfsgetuna sína árum saman og loks fyrirtækið sitt sem var háð hennar starfsgetu. Hún var óvinnufær í nokkur ár. Ég hélt hún væri dauðvona en læknar höfðu engin svör. Við erum bara tvær systurnar og mjög nánar, því var þetta tímabil mjög erfitt.

Samfélagið er skammt á veg komið þegar kemur að því að bregðast við myglu. Víða eru fordómar gagnvart mygluveikindum. Það virðist vanta alþjóðleg viðmið og innlend viðmið. Það vantar betri umgjörð um uppbyggingu. Það vantar líka samræmt ferli við greiningar og viðbrögð þar sem þolendur myglu fá nauðsynlega aðstoð. Því fagna ég að þingsályktunartillaga Pírata vegna myglu og rakaskemmda hafi verið samþykkt á þingi. Við verðum að standa vörð um verkefni Rannsóknarmiðstöðvar byggingariðnaðarins sem hefur verið leiðandi í myglurannsóknum og að vinnan falli ekki brott með niðurlagningu Nýsköpunarmiðstöðvarinnar sem hún hefur verið hluti af.

Eftir að rakaskemmdir og mygla komu upp í Fossvogsskóla höfum við Píratar í borgarstjórn beitt okkur fyrir því að málið verði leyst. Við höfum beðið um gögn og skýringar, ýtt á eftir frekari greiningum og úrbótum, fundað með helstu myglusérfræðingum landsins tímunum saman til að afla okkur þekkingar í málaflokknum. Vegna þess að við sættum okkur ekki við myglu í skólum barna í Reykjavík. Ýmislegt hefur verið gert. Viðgerðir og úrbætur í skólanum hafa kostað um hálfan milljarð króna hingað til. Á tímabili var allt skólahald flutt úr skólanum. En við erum ekki komin í höfn og betur má ef duga skal.

Hjá okkur í borginni vantar skýrari verkferla og betri samskipti. Við verðum að læra af þessu máli og gera enn betur. Þess vegna höfum við sett saman nýtt teymi sérfræðinga og fulltrúa foreldra og borgarinnar sem ætla að taka Fossvogsskóla enn fastari tökum. Þess vegna samþykktum við í borgarráði í dag tillögu þess efnis að ráðast í vinnu við betri verkferla til framtíðar þegar myglu- og rakavandamál koma upp.

Ég held áfram að beita mér fyrir því að málið leysist, héðan í frá sem hingað til. Því börn eiga rétt á heilsusamlegu umhverfi og að það sé yfir allan vafa hafið að skólinn þeirra sé ekki að gera þau veik.

Höfundur er borgarfulltrúi Pírata.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×