Skoðun

Banvæn féþúfa

Gunnlaugur Stefánsson skrifar

Ísland er líklega eina landið í heiminum sem leyfir að nota útlenskan og kynbættan stofn í laxeldi. Það skapar óhjákvæmilega erfðablöndun við villta og staðbundna laxastofna. Engar mótvægisaðgerðir geta komið í veg fyrir það, mesta lagi hægt á þróuninni. Táknrænt um það eru myndavélar sem menn dýfa niður í árvötnin með ærnum kostnaði til að mynda göngufiska og ætla svo að skilja eldisfiskana frá. En stærstur hluti sleppifiska úr opnum sjókvíum eru að uppruna seiði sem sluppu og verða ekki greindir af myndum sem fullorðnir eldisfiskar á göngu upp árnar til hrygningar, en merkingarskylda seiða í kvíum hefur verið afnumin.

Þetta vita sérfræðingar, en láta eins og vind um eyru þjóta, og stjórnmálamenn glepjast af „gróðanum“ í eldinu og sjá ekki annað. Fyrr en varir birtast niðurstöður úr rannsóknum sem sýna umtalsverða erfðablöndun í villtum laxastofnum. Eldislax er t.d. þegar kominn í flestar árnar í Arnarfirði. Það er fórnin fyrir gróða norskra auðrisa af nýlendu sinni á Íslandi. Þetta heitir að svíkja umhverfið í banvænar greipar og fórna villta laxinum. Hin pólitíska hugsjón, sem horfir upp á það aðgerðalaus, hlýtur að vera æði dofin og köld.

En norsku eldisrisarnir hrósa sér af því heima hjá sér að framtíðin felist ekki í opna sjókvíaeldinu heldfur landeldi og risaseldiskvíum langt úti á hafi víðsfjarri viðkvæmum fjörðum. Reynslan af opna eldinu í fjörðunum í Noregi hefur reynst svo skaðleg fyrir umhverfið og villta fiskistofna að fullreynt þykir. En hér á landi er flest leyfilegt og umhverfisverndin þvælist ekki fyrir.

Þá dugar að norskir eldisrisar monti sig af því að bjarga „örmagna“ byggðum og fá svo eldisleyfin nánast ókeypis á silfurfati sem kosta tugi milljarða í Noregi. Líklega hefur landsbyggðarpólitíkin ekki lagst lægra í seinni tíð að verða svo auðblekkt féþúfa fyrir fáeina norska eldisrisa og í boði íslenskra stjórnmálamanna sem virðast uppgefnir á að skapa skilyrði fyrir trausta búsetu og afkomu í dreifðum byggðum.

Svo ætla sömu stjórnmálamenn að berja á dyr fólks fyrir kosningar og telja því trú um að þeim sé sérstaklega annt um græna atvinnu og umhverfisvernd. Við lifum örugglega í raunheimum?

Höfundur er fyrrverandi alþingismaður Alþýðuflokksins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×