Skoðun

Örplast og oxíð í Raman-smásjá

Gissur Örlygsson skrifar

Efnafræðilegar upplýsingar í ýmsu samhengi

Nýsköpunarmiðstöð festi nýlega kaup á fullkominni Raman-smásjá. Sjá má fyrir sér að tækið nýtist á fjölmörgum sviðum rannsókna, þróunar og þjónustu. Við rannsóknir á örplasti mun tækið valda straumhvörfum því hægt er á einfaldan hátt að greina tegundir plasts í sýnum af ýmsum toga, svo sem vefjasýnum og sýnum úr sjó. Ekki hefur verið unnt að gera slíkar greiningar hér á landi til þessa. Tækið getur nýst á margan hátt varðandi tæknirannsóknir lögreglu, t.d. við greiningu á trefjum (hári, vefnaði), greiningu á málningu, eiturlyfjum, sprengiefnum og fölsunum af ýmsum toga. Tæringarrannsóknir tengdar jarðhitaiðnaðinum munu njóta góðs af tækninni, t.d. til greininga á oxíðum, súlfíðum og klóríðum. Þá geta rannsóknir og þróun á sviði orkugjafa, lyfja, fæðubótarefna og snyrtivara, fjölliða, lækningatækja og ígræða og efnagreiningartækni notið góðs af tækjabúnaðinum, svo einhver dæmi séu nefnd.

Dreifing innihaldsefna í lyfjatöflu og Raman-róf þeirra.Mynd/Horiba Scientific

Einfaldur sýnaundirbúningur

Mælingar krefjast lágmarksundirbúnings sýna. Ekki þarf t.d. að leysa sýnið upp, draga efni út eða slíkt til að geta mælt. Með skönnun er gert kleift að sjá dreifingu efna í yfirborði sýnis, t.d. má greina samsetningu lyfjatöflu eins og sýnt er á myndinni hér á síðunni. Einnig má skanna ákveðið rúmmál og fá þannig þrívíddargögn um dreifingu, svo fremi að ljós af viðkomandi bylgjulengd nái inn í sýnið. Hægt er að nota tækið til að fylgjast með efnabreytingum með því að skanna yfir tíma og fá þannig upplýsingar um breytingar á hvarfefnum og myndefnum og um hraða breytinganna.

Raman-tækið á Nýsköpunarmiðstöð, LabRAM HR Evolution frá Horiba.

Titringur og leysiljós

Raman-mælingar byggjast á greiningu á titringi í sameindum með því að skoða tvístrun ljóss. Notað er leysiljós á sýnilega sviðinu og þar í kring. Raman-greiningar veita efnafræðilegar upplýsingar um sýnið, því að titringstíðni efnatengja og hópa efnatengja er einkennandi fyrir þau. Titringstíðnin og hugsanleg hliðrun hennar ásamt línubreidd gefa einnig upplýsingar um efnafræðilegt umhverfi. Hvert efnasamband hefur sitt einkennandi róf og einnig má greina blöndur efna í þætti. Notast er við gagnabanka með rófum þekktra efna við greiningarnar, en hægt er að bæta gögnum úr eigin mælingum í gagnabankann.

Öflug viðbót í greiningarkostum

Á heildina litið er um að ræða frábæra viðbót við tækjakost Nýsköpunarmiðstöðvar sem styrkir greiningarkosti á mörgum fagsviðum ásamt því að gefa kost á betri þjónustu við atvinnulíf og stofnanir. Kaupin voru styrkt af Innviðasjóði með stuðningi stofnana, háskóla og fyrirtækja.

Höfundur er verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Þessi grein er hluti af ritröðinni Nýsköpun og rannsóknir sem varpar ljósi á fjölbreyttar vísindarannsóknir og nýsköpunarstarf sem unnið er að hérlendis. Greinarnar eru skrifaðar af starfsmönnum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og eru úr ársskýrslu miðstöðvarinnar. Nánari upplýsingar um Nýsköpunarmiðstöð Íslands eru á www.nmi.is.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×