Rafíþróttir

Í beinni: Vodafonedeildin í CS:GO

Bjarni Bjarnason skrifar
Vodafonedeildin sett

Úrvalsliðin etja kappi í Vodafonedeildinni í CS:GO í kvöld. Verður ellefta umferð deildarinnar leikin og er þetta önnur viðureign liðanna. Munurinn er þó sá að skipst hefur verið á heimavallar hlutverkinu. En heimavallarliðið fær að velja kortið.

Þór og XY mætast í fyrsta leik kvöldsins. Fyrri viðureign liðanna var hörkuspennandi og bar Þór þar sigur úr bítum. En bæði liðin nýttu leikmannagluggann til að næla sér í viðbætur og styrkja sig en frekar. Spennandi verður að sjá liðin mætast í því sem að öllum líkindum verður hnífjafn leikur.

Í millileik kvöldsins mætast GOAT og Exile. Breytt lið GOAT leit vel út í síðasta leik og sjáum við í kvöld hvernig þeim hefur gengið að slípa sig saman. Baráttumennirnir í Exile hafa átt góða spretti það sem af er deildinni en eru þó í síðasta sæti. Munu þeir því mæta hungraðir til leiks í von um að klifra upp töflunni.

Lokaleikur kvöldsins verður HaFiÐ gegn stórveldi KR. Lið KR hefur sýnt stórkostlega takta í deildinni, lagt hvert liðið á fætur öðru og eru þeir í öðru sæti í deildinni. Sterkt lið Hafsins nartar þó í hælana á þeim úr næsta sæti fyrir neðan. Þetta verður spennandi viðureign í kvöld en fyrri viðureign liðanna sigraði KR.

Fyrsta viðureign kvöldsins hefst kl 19:30 og verður sýnd á Stöð 2 esport og hér á Vísi.

Leikir kvöldsins verða samkvæmt dagskrá hér að neðan.

19:30 Þór - XY

20:30 GOAT - Exile

21:30 HaFiÐ - KR

Útsending er hafin og stendur yfir fram eftir kvöldi og hægt er að fylgjast með henni hérna.






×