Skoðun

Hvernig má fást við á­hyggjur af kóróna­veirunni?

Sóley Dröfn Davíðsdóttir og Hulda Jónsdóttir Tölgyes skrifar

Kórónaveiran COVID-19 hefur notið mikillar athygli fjölmiðla að undanförnu og vel um það fjallað hvernig varast beri smit. Minna hefur þó verið um það rætt hvernig fást megi við áhyggjurnar og kvíðann sem umfjölluninni getur fylgt. Því hafa hér að neðan verið tekin saman nokkur ráð til að bæta úr þessu.

  1. Fylgdu leiðbeiningum Landslæknis í hvívetna, og láttu það duga í bili. Óhóflegar öryggisráðstafanir eins og að loka sig af svo mánuðum skiptir, forðast alfarið samskipti við fólk eða sótthreinsa hendur endalaust geta ýtt undir kvíðann. Ef þú hagar þér eins og stórfelld hætta sé á ferðinni mun heilinn ræsa kvíðaviðbragðið í það óendalega. Kvíðaviðbragðið er í sjálfu sér ekki hættulegt en óþægilegt. Þá getur einangrun ýtt undir þunglyndi.
  1. Haltu þínu striki; gerðu það sem þér þykir ánægjulegt, mikilvægt og þarft; hugaðu áfram að hreyfingu, næringu, svefni og félagslífi.
  1. Hugsaðu með þér að þú sért að gera það sem þú getur og að áhyggjur af málefninu séu ekki til bóta. Taktu eftir því þegar áhyggjur láta á sér kræla og dreifðu huganum. Gott er að taka sér eitthvað krefjandi fyrir hendur eða sinna áhugamáli þar sem þú gleymir þér, til dæmis að ráða krossgátur, fara í tölvuleiki, sinna handavinnu, eiga skemmtileg samtöl, afla þér þekkingar um áhugavert málefni (annað en COVID-19). 
  1. Minntu þig á að óvissunni sem lífinu fylgir verður seint eytt, og það væri ekkert betra að vita alltaf hvernig allt fer. Þá kæmi heldur ekkert á óvart og væri heldur óspennandi líf! Þú þolir líklega óvissu á öðrum sviðum, ferðast áhyggjulaus á milli staða þótt eitt og annað geti komið upp á þar líka.  Æfðu þig í að þola við í óvissunni á þessu sviði með því að segja við þig „svo fer sem fer“ þegar áhyggjur láta á sér kræla.
  1. Forðastu að lesa þér endalaust til um COVID-19 en fylgstu með fréttum líkt og þú gerir venjulega. Hafðu hugfast að fjölmiðlar eiga það til að fjalla mikið um mögulegar ógnir og hamfarir á kostnað þess sem vel gengur. Heili okkar er líka þannig úr garði gerður að hann leitar uppi mögulegar hættur og það á líka við um fréttir. Minntu þig á að með harkalegum viðbrögðum yfirvalda og fjölmiðla er verið að standa vörð um efnahagslega hagsmuni okkar, ekki síður en heilsufarslega.
  1. Ef ofangreind ráð duga ekki til að draga úr óhóflegum kvíða,  hvetjum við þig til að leita þér aðstoðar. Vel má ná tökum á vanlíðan vegna þessa málefnis sem og öðrum og er minnt á að unnt er að fá viðtöl sums staðar í gegnum fjarbúnað, ef þú treystir þér ekki til að fara út úr húsi.

Höfundar eru sálfræðingar við Kvíðameðferðarstöðina.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×