Skoðun

Íslensk EGG – heilnæm og örugg

Sigmar Vilhjálmsson skrifar

Í nýlegri samantekt frá Food and Safety news kemur fram að tæplega 250 nýjar sýkingar af völdum Salmónellu hafa verið skráðar í mörgum Evrópulöndum sem rekja má til eggjaframleiðslu í Póllandi.

Sóttvarnarstofnun Evrópu  (ECDC) og Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) greindu frá því að í janúar á þessu ári hafi 18 lönd greint frá 656 staðfestum og 202 líklegum tilvikum síðan í febrúar 2017.

Það eru 385 staðfest sögulega og 413 sögulega líkleg tilfelli sem ganga allt aftur til ársins 2012 sem gerir þetta að stærsta evrópska Salmónellu Enteritidis faraldri sem mælst hefur. Embættismenn ECDC sögðu þó að raunverulegt umfang faraldursins væri líklega vanmetið.

Frá því í nóvember 2018 hefur verið greint frá 248 nýjum tilvikum, þar af voru 124 staðfest, 36 líkleg, 42 sögulegar staðfestar og 46 sögulegar líkur á sýkingum.

Meira en 1.600 einstaklingar hafa veikst síðan 2012 frá ólíkum löndum. Belgía, Króatía, Tékkland, Danmörk, Finnland, Frakkland, Grikkland, Ungverjaland, Írland, Ítalía, Lúxemborg, Holland, Noregur, Pólland, Rúmenía, Slóvenía, Svíþjóð og Bretland hafa skráð 1.656 smit frá því 2012. Bretland er með mest með 688 staðfest og líkleg mál, Holland er með 280, Belgía er með 202 og Tékkland er með 111.

Upplýsingar um sjúkrahúsvist eru tiltækar fyrir 427 sjúklinga í 12 löndum og 136 þurftu sjúkrahúsmeðferð meðal staðfestra og sögulegra staðfestra tilfella. Einnig var greint frá tveimur sögulegum dauðsföllum, barni og öldruðum sjúklingi.

Stærstu hópsýkingarnar hérlendis á síðastliðnum árum voru árið 1996 af völdum S. Enteritidis í rjómabollum og árið 2000, þegar S. Typhimurium barst með jöklasalati.

Í skýrslu MAST frá nóvember 2019 kemur fram að „Það hefur aldrei verið hægt að staðfesta matarborna hópsýkingar í fólki hérlendis vegna innlendra eggja“. Hvað segir það okkur um íslenska eggjaframleiðslu?

Það skiptir máli að neytendur viti hvort þeir séu að borða íslensk egg eða innflutt egg. Það er á ábyrgð innflytjanda og söluaðila að upplýsa neytendur hvaða vöru verið er að selja og hvaðan hún kemur. Sérstaklega þegar kemur að fersku hráefni sem borið getur með sér bannvænar veirusýkingar eins og Salmónellu.

Sem betur fer búum við svo vel að vera með eina bestu og heilnæmustu eggjaframleiðslu í heimi og getum vel annað allri eftirspurn.

Höfundur er talsmaður FESK,  Félags eggja-, svína- og kjúklingabænda á Íslandi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×