Skoðun

Raf­rettur að brenna út?

Tómas Guðbjartsson skrifar

Það voru sérlega ánægjulegar fréttir sem birtust á forsíðu Fréttablaðsins í gær en þar kom fram að rafrettunotkun 10. bekkinga hefur dregist saman um næstum helming, eða úr 10% árið 2018 í 6% nú. Á sama tíma hafa reykingar unglinga og fullorðinna dregist saman en aðeins 6% fulllorðinna Íslendinga reykja daglega - sem er sennilega heimsmet. 

Það er ljóst að aukin fræðsla um skaðsemi rafrettna er að skila sér, ekki síst í kjölfar faraldurs af bráðum lungnaskaða (ARDS) í Bandaríkunum á sl. ári. Einnig spannst þörf umræða í kringum íslensk tilfelli þar sem ungir einstaklingar fengu rof á lunga eftir rafrettunotkun. Sennilega hafa foreldrar því brýnt betur fyrir börnum sínum að láta veipið vera, eins og þeir hafa greinilega gert með sígarettur og áfengi.

Þessi frábæru tíðindi slá á þá mítu að rafrettur og veip séu forsenda þess að lækka tíðni reykinga - kenning sem ekki heldur vatni enda hefur lækkun á tíðni reykinga haldist í hendur við minni notkun rafrettna. Veip er vissulega skárra en sígarettur og getur hjálpað sumum einstaklingum að hætta reykingum .Það er þó engan vegin eina leiðin til að ná reykleysi og má t.d. nefna nikótínplástur, neðúða og tyggjó. Rafrettur og veip eru heldur engin saklaus neysluvara, en því miður hefur markaðssetning aðallega beinst að börnum og unglingum, og fyrirtækin þannig reynt að tryggja sér bissness upprennandi nikótínfíkla ævilangt. Rafrettur hafa verið faraldur hér á landi, ekki síst hjá unglingum og menntaskólanemum, og mikilvægt að ná að snúa þeirri þróun við sem snarast. 

Rannsoknir og greining

Nú er brýnt að setja strangari reglugerðir um bragðefni í rafrettuvökva, fækka sölustöðum og takmarka þannig enn frekar aðgengi barna og unglinga að rafrettum. Þannig getum við náð rafrettunotkun unglinga niður í reykingatölur - sem í dag eru vart mælanlegar. Einnig verður að tryggja að settar verði skýrar reglur um sölu nikótínpúða og munntóbaks. Á Íslandi höfum við náð frábærum árangri í tóbaksvörnum og ég er sannfærður um að sú aðferðafræði sem beitt hefur verið hérlendis muni vekja athygli erlendis, líkt og góður árangur okkar í Covid-19 faraldrinum. Fækkun reykingatengdra sjúkdóma mun spara íslensku heilbrigðiskerfi tugi milljarða á næstu áratugum en enn þyngra vega öll þau mannslíf sem bjargað verður með þessum markvissu aðgerðum.

Höfundur er hjartaskurðlæknir og prófessor.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×