Rafíþróttir

„Við erum vanir því að vera á toppnum svo það kemur mér ekki á ó­vart að liðið sé á þessum stað“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Fylkismenn eru klárir í úrslitaleikinn um helgina.
Fylkismenn eru klárir í úrslitaleikinn um helgina. vísir/s2s

Fylkir og FH eigast við í úrslitaleik Stórmeistaramóts Vodafone-deildarinnar í CS:GO á sunnudaginn en að því tilefni voru Fylkismenn heimsóttir í sérstökum upphitunarþætti fyrir leikinn.

FH voru heimsóttir á dögunum þar sem Viðar Halldórsson, formaður FH, sagði að það væri sama uppi á teningnum hjá FH í rafíþróttadeildunum eins og í öðrum deildum; það væri vilji til þess að vinna allt.

Kollegi Viðars í Árbænum, Björn Gíslason, formaður Fylkis sagði að það væri gaman að fylgjast með ungu liði Fylkis sem afgreiddi KR í framlengdum undanúrslitaleik á dögunum.

„Við erum vanir því að vera á toppnum svo það kemur mér ekki á óvart að liðið sé á þessum stað. Liðið er ungt og við erum eins og fleiri lið með þessa deild. Hún er mjög vaxandi og á ekki eftir að gera neitt annað en eflast,“ sagði Björn.

Gunnar Ágúst Thoroddsen, fyrirliði Fylkis, segir að liðið þurfi að koma með allt öðruvísi leikplan inn í úrslitaleikinn á sunnudaginn.

„FH og Dusty eru með allt öðruvísi „maps“ og þetta verður meiri taktík gegn FH. Þeir eru meiri taktíkal lið en Dusty,“ sagði Gunnar.

Útsending frá úrslitaleiknum hefst klukkan 17.00 á Stöð 2 eSport á sunnudag.

Klippa: Rafíþróttadeild Fylkis heimsótt





×