Skoðun

Að standa vörð hvert um annað

Flosi Eiríksson skrifar

Við sem erum alin upp við grátkór LÍÚ, verðbólgu, gengisfellingar og smjörfjöll erum eðlilega svolítið tortryggin þegar valdahópar fara að kalla eftir breiðri samstöðu í þjóðfélaginu um efnahagsaðgerðir, lýsa því allt í einu yfir að núna séum við öll á sama báti og telja, eins og stundum áður, að eina leiðin til að taka á vandanum sé að lækka laun láglaunafólks, eins og fram kom í tillögum Samtaka atvinnulífsins. Stundum hefur sú mikla samstaða snúist um að verja ríkjandi ástand, tryggja völd og forréttindi.

Í yfirstandandi hremmingum má svo sem heyra þessa gamalkunnu tóna, en það bregður líka fyrir nýjum tónum sem er fagnaðarefni. Um nauðsyn þess að hafa hér öflugt heilbrigðiskerfi fyrir alla, um mikilvægi innviða af margvíslegu tagi, um fagmennsku og breiða samvinnu.

Þagnaður er að mestu söngurinn um að markaðurinn einn sé bestur til að finna lausnir og heilbrigðisþjónustu eigi að einkavæða sem víðast.

Sú breiða samstaða sem maður finnur nú fyrir er af öðrum meiði, við viljum standa hvert með öðru, standa vörð hvert um annað. Þetta gerum við oft á dag með því að fylgja fyrirmælum og leiðbeiningum um fjarlægð frá öðrum, vinnum heima, heimsækjum ekki ömmu og afa og sprittum okkur í sífellu. Það er ekki af því okkur er skipað að gera það, heldur af því við viljum hjálpast að, standa saman.

Því fylgir líka endurmat á mikilvægi hópa í samfélaginu, krafa og skilningur um að gerðir séu kjarasamningar við stóra hópa heilbrigðisstarfsfólks svo dæmi séu tekin, og sjúkrahúsin séu búin þeim tækjum og tólum sem nauðsynleg eru. Við flest leggjum okkar af mörkum í þeirri fjármögnun á hverjum degi með því að greiða okkar skatta og skyldur, það er gert í hljóði og þarf ekki að auglýsa í Fréttablaðinu eins og sumir sem gefa opinberar leynigjafir eða leynilegar opinberar gjafir.

Vonandi tekst okkur að varðveita þessa samstöðu um öflugt velferðarkerfi, um innviði sem gagnast okkur öllum, um nauðsyn þess að endurmeta hvað eru verðmæti, um mikilvægi fólksins sem vinnur við umönnun, hverju nafni sem hún nefnist.

Þessi samstaða gæti orðið viðspyrnan fyrir uppbyggingu samfélagsins, að starfsfólkið í ferðaþjónustunni sem margt er láglaunafólk, njóti umsamina kjara og réttinda, að stórfelld og margvísleg brot á erlendu starfsfólki heyri sögunni til. Að atvinnurekendur og aðrir standi við stóru orðin um samstöðuna, að við stöndum hvert með öðru og berum ábyrgð hvert á öðru.

Höfundur er framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×