Skoðun

Ró­bótar vinna erfiðis­verkin

Carlos Mendoza skrifar

Öruggara starfsumhverfi og bætt framleiðslustýring með róbótum

Á mánudagsmorgni í ónefndu álveri klæðir kona sig upp í fullan hlífðarskrúða og gengur inn á vinnusvæði álversins. Hún opnar rennu þar sem 700-800 gráðu heitt ál flæðir fram hjá. Með ausu veiðir hún bráðið ál upp úr rennunni. Hún steypir álið í mót og býr til sýni þannig að hægt sé að meta gæði framleiðslunnar. Ferlinu er þó langt frá lokið. Sýnið er flutt inn á rannsóknastofu þar sem það er meðhöndlað og mælt. Langur tími getur liðið þar til rannsóknarstofan skilar niðurstöðum sem segja til um hvort efnasamsetning álsins sé innan settra marka – eða hvort stór hluti vinnslulotunnar sé unnin fyrir gýg.

Efnagreiningarróboti DTE

Til allrar hamingju er ný leið til að mæla efnainnihald álsins nú orðin fær. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur undanfarin ár aðstoðað sprotafyrirtækið DTE við að þróa búnað til að meta efnainnihald bráðins málms í rauntíma. Nýja aðferðin er fljótlegri, öruggari og skilar nákvæmni til jafns við sýnin sem mæld eru á tilraunastofu. Lítum aðeins á sama ferli með tækni DTE.

Starfsmenn DTE forrita færanlegan efnagreiningarróbota.

Á mánudagsmorgni situr kona í skrifstofustól í þægilegum fatnaði í stjórnstöð álframleiðslunnar. Hún heldur á rjúkandi kaffibolla og fylgist með á skjá þegar armur iðnaðarróbóta nálgast bráðið álið með mikilli nákvæmni. Laser-púls fellur á álið og á örskotsstundu greinir tækið ljósið sem endurkastast af yfirborðinu. Áður en mínúta er liðin birtast niðurstöður á skjánum og konan hefur aðgang að öllum upplýsingum um efnainnihald álframleiðslunnar sem er í fullum gangi. Með þessari tækni er loks hægt að hafa nákvæma stjórn á gæðum framleiðslunnar í rauntíma. Konan átti ekki á hættu að brenna sig á bráðnu álinu og greiningar má endurtaka sjálfvirkt eins oft og þurfa þykir, jafnvel mörg hundruð sinnum á hverjum degi. Þannig er hægt að stjórna og ná gæðum í framleiðslunni sem eru langt umfram það sem áður hefur þekkst í áliðnaði.

Látum róbótana vinna erfiðisverkin

Þetta tækniafrek náðist meðal annars með því að nýta þekkingu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á róbótatækni, efnisfræði málma, laser-tækni og litrófsgreiningum. Verið er að taka í notkun fyrsta efnagreiningarróbotann af þessari gerð í álveri á Íslandi, auk þess sem prófanir standa yfir með færanlega gerð af róbótanum sem koma mun á markað á næstu mánuðum. Markmiðið með innleiðingu sjálfvirkra efnagreiningarróbota er að minnka slysahættu og bæta framleiðslustýringu álvera til muna. Þróunarverkefnið hefur verið styrkt af Tækniþróunarsjóði og Horizon 2020 áætlun Evrópusambandsins.

Höfundur er verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Þessi grein er hluti af ritröðinni Nýsköpun og rannsóknir sem varpar ljósi á fjölbreyttar vísindarannsóknir og nýsköpunarstarf sem unnið er að hérlendis. Greinarnar eru skrifaðar af starfsmönnum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og eru úr ársskýrslu miðstöðvarinnar. Nánari upplýsingar um Nýsköpunarmiðstöð Íslands eru á www.nmi.is.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×