Skoðun

Með vel­ferð barna að vopni

Karen Nordquist Ragnarsdóttir skrifar

Sem nemandi 10. bekkjar í Kársnesskóla í Kópavogi hef ég verið í fjarnámi í tvo mánuði sökum verkfalla og kórónuveirunnar. Mér hefur gengið sæmilega að aðlagast ástandinu en það á ekki við alla. Ég bý að því að hafa stundað fjarnámsáfanga við Verzlunarskóla Íslands síðustu tvær annir og það hefur án efa hjálpað mér við að skipuleggja mig. Ég er þó orðin leið á þessu ástandi og mig langar að komast aftur í skólann, hitta félaga og kennara og ljúka síðasta árinu mínu í grunnskóla með sóma.

Kórónuveiran er sem betur fer á undanhaldi og skólahald að komast í eðlilegt horf á flestum stöðum. Þó ekki hjá þeim sveitafélögum sem hafa ekki náð samningum við Eflingu.

Það er óásættanlegt að Efling og sveitarfélögin Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Ölfus séu ekki búin að semja. Það eru komnir næstum tveir mánuðir síðan félagsmenn Eflingar fóru fyrst í verkfall og stóð það í tvær vikur. Þar af leiðandi hafa samningsaðilar haft nægan tíma til að funda þrátt fyrir að kórónuveiran hafi lamað samfélagið um stund. Til þess hefði mátt nota ýmis tæki og fjarfundarbúnað. Langt hefur verið á milli funda og virka samningsaðilar tregir til sátta þar sem fáir fundir hafa verið haldnir og þeir varað stutt í einu.

Grunnskólanemendur búa við misjafnar aðstæður og fyrir suma er erfitt að fá viðunandi aðstoð heima fyrir við námið. Námsefni hefur verið fellt niður sem leiðir til þess að við erum ekki jafn vel undirbúin fyrir komandi nám í framhaldsskólum.

Yngri börn hafa ekki kost á því að stunda fjarnám. Þau hafa nú þegar misst talsvert úr yfirferð kennsluefnis annarinnar sem mun án efa bitna á nemendum og kennurum á komandi vikum. Það er vert að taka fram að kennarar eiga mikið hrós skilið fyrir sína vinnu á þessum tímum fyrir að reyna að koma til móts við nemendur af bestu getu.

Að þessu viðbættu hafa stjórnvöld gefið það út að heimilisofbeldi hefur aukist á undanförnum mánuðum og er það skelfileg staðreynd. Skólinn getur verið griðastaður fyrir marga, sérstaklega fyrir börn sem upplifa andlegt eða líkamlegt ofbeldi eða búa við fátækt.

Að lokum er hagkerfið á hliðinni, mörg fyrirtæki á leiðinni í þrot og mörg þúsund manns hafa misst vinnuna. Mikilvægt er að standa saman í gegnum þessa erfiðu tíma og sýna gott fordæmi. Ég skora því á samningsaðila að semja hið snarasta og enda þetta verkfall.

Höfundur er grunnskólanemi og ritari Týs, félags ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×