Króaður af á stolnum bíl Kristín Ólafsdóttir skrifar 10. desember 2019 06:27 Lögregla sinnti nokkrum verkefnum í gærkvöldi- og í nótt. Vísir/vilhelm
Lögregla handtók ökumann á stolnum bíl í Garðabæ eftir stutta eftirför á þriðja tímanum í nótt. Hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og var að lokum króaður af. Þá er maðurinn grunaður um ölvunarakstur. Hann var vistaður í fangageymslu, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Tilkynnt var um líkamsárás í miðbænum á þriðja tímanum í nótt. Þar höfðu nokkrir ráðist á einn, sem hlaut minniháttar áverka. Ekki er vitað hverjir gerendur eru. Skömmu eftir klukkan fimm var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna ölvaðs hótelgests sem var að áreita starfsfólk. Lögregla ræddi við manninn sem lofaði „bót og betrun“, að því er segir í dagbók lögreglu. Þá stöðvaði lögregla ökumann á ótryggðum bíl í Fossvogi. Maðurinn er grunaður um fíkniefnaakstur og vörslu fíkniefna. Hann var vistaður í fangageymslu þar sem hann hafði ekki landvistarleyfi. Þá komu lögreglumenn að umferðarslysi í Breiðholti í gærkvöldi. Einn var handtekinn á vettvangi grunaður um ölvunar -og fíkniefnaakstur. Hann var látinn laus að lokinni sýnatöku. Tveggja bíla árekstur varð síðdegis í gær á Vesturlandsvegi. Farþegi í annarri bifreiðinni var fluttur á slysadeild til skoðunar. Báðar bifreiðar voru óökufærar eftir áreksturinn.
Garðabær Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Dómurinn sé vonbrigði og sendi röng skilaboð Innlent „Mér finnst þetta bara ömurlegt“ Innlent „Þetta er bara komið til að vera“ Innlent Bið eftir aðgerð vegna hálkuslyss óboðleg af hálfu kerfisins Innlent Tveir mánuðir fyrir brot gegn barni í búningsklefa Innlent Staðfesta dóm manns sem nauðgaði konu þremur dögum eftir afplánun Innlent Fyrrverandi þingmenn sækja um sendiherrastöðu Innlent Öllum starfsmönnum sagt upp og verkefnum úthýst til einkafyrirtækis Innlent Grautfúl að tapa forsetakosningunum Innlent Lögreglan lýsir eftir Áslaugu Innlent Fleiri fréttir Raunir ársins 2024 „Mér finnst þetta bara ömurlegt“ „Þetta er bara komið til að vera“ Dómurinn sé vonbrigði og sendi röng skilaboð Tveir mánuðir fyrir brot gegn barni í búningsklefa Bið eftir aðgerð vegna hálkuslyss óboðleg af hálfu kerfisins Fyrrverandi þingmenn sækja um sendiherrastöðu Grautfúl að tapa forsetakosningunum Dynjandisheiði boðin út með verklokum haustið 2026 Segir fréttir af pólitísku andláti sínu stórlega ýktar Grautfúl eftir að hafa tapað forsetakosningum Staðfesta dóm manns sem nauðgaði konu þremur dögum eftir afplánun Lögreglumanni ekki gerð refsing átta árum eftir að hann réðst á fanga Lögreglan lýsir eftir Áslaugu Öllum starfsmönnum sagt upp og verkefnum úthýst til einkafyrirtækis Máli Sigurlínar á hendur Ríkisútvarpinu vísað frá Síðasti séns að senda inn tilnefningar til manns ársins Upplifði djúpa sorg þegar Vinstri græn duttu af þingi Leggja til styttri tímafresti og minni flækjur í orkumálum Skammaður af nefndinni og kærður til lögreglu Fá milljarða frá ESB til að tryggja vatnsgæði á Íslandi Vilja að lyfjafræðingar geti ávísað lyfjum og apótek verði fyrsti viðkomustaður Framkoma SVEIT sé „svívirðileg atlaga að réttindum launafólks“ Rekja bilanir á Víkurstreng til efnistöku úr ám Mannleg mistök hafi valdið því að beiðni til borgarinnar týndist Vongóð um að íslenskir læknar erlendis muni snúa heim Seinagangur hjá borginni að mati Umboðsmanns Yfir átján prósent íbúa á Íslandi eru innflytjendur Fækkar í þjóðkirkjunni en Siðmennt bætir mest við sig Réttað yfir manni sem er ákærður fyrir að brjóta gegn fatlaðri konu og syni hennar Sjá meira