Zúistar telja ósannað að loforð um endurgreiðslur hafi fjölgað félögum Kjartan Kjartansson skrifar 22. október 2019 15:30 Trúfélagið Zuism stefndi ríkinu vegna þess að sóknargjöldum var haldið eftir frá 2016 til 2017 vegna óvissu um hver stýrði félaginu. Zúistar vildu reisa hof í Reykjavík en var hafnað hjá Reykjavíkurborg. Vísir
Lögmaður trúfélagsins Zuism telur ósannað að loforð hóps sem stýrði félaginu tímabundið um að endurgreiða sóknargjöld til félagsmanna hafi valdið mikilli fjölgun félaga. Zúistar urðu eitt stærsta trúfélag landsins með þúsundir félaga eftir loforðið en fyrir það mátti telja félaga á fingrum annarrar handar. Þetta kom fram í aðalmeðferð í máli Zuism gegn íslenska ríkinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Zuism stefndi ríkinu til greiðslu dráttarvaxta á sóknargjöldum sem haldið var eftir á meðan greitt var úr hver færi með yfirráð í trúfélaginu frá 2016 til 2017. Einnig krefjast zúistar að viðurkennd verði skaðabótaskylda ríkisins vegna þess. Upphaf málsins má rekja til þess að sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra, sem hefur eftirlit með starfsemi trú- og lífsskoðunarfélaga, hugðist afskrá Zuism árið 2015. Félagið hafði þá verið skráð trúfélag frá árinu 2013 en engin merkjanleg starfsemi fór fram á vegum þess. Félagsmenn voru aðeins tveir til fjórir frá 2013 til 2015. Þá höfðu forsvarsmenn félagsins hvorki tilkynnt um nýjan forstöðumann eftir að sá fyrri hætti né skilað skýrslum um starfsemina eins og þeim bar skylda til að gera. Áður en til afskráningar kom auglýsti sýslumaður eftir aðstandendum félagsins í Lögbirtingarblaðinu. Þá gaf sig fram hópur fólks, sem virðist hafa viljað nota félagið til að gagnrýna lagaumhverfi trúfélaga á Íslandi, og var Ísak Andri Ólafsson viðurkenndur forstöðumaður í júní 2015. Sú ákvörðun var síðar felld úr gildi og var Ágúst Arnar Ágústsson, einn upphaflegra stofnenda Zuism, viðurkenndur forstöðumaður í september árið 2017. Á meðan greitt var úr hver ætti raunverulegt tilkall til forstöðumannsstólsins hélt ríkið eftir sóknargjöldum til Zuism. Eftir að Ágúst Arnar var staðfestur forstöðumaður greiddi Fjársýsla ríkisins félaginu út rúmar 50 milljónir króna í sóknargjöld í október árið 2017. Ágúst Arnar vill nú fá greidda dráttarvexti fyrir það tímabil sem sóknargjöldunum var haldið eftir og skaðabætur vegna þess. Sýslumaður stöðvaði greiðslur á sóknargjöldum til Zuism aftur í febrúar og vísaði til vafa um að félagið uppfyllti skilyrði laga um trúfélög í „víðtækum skilningi“. Annað dómsmál Zuism gegn ríkinu vegna þeirrar ákvörðunar verður tekið fyrir á næstunni. Fram kom í dómsal í morgun að sóknargjöld séu enn ekki greidd út til félagsins.Ágúst Arnar Ágústsson, forstöðumaður Zuism. Aðalfundur Zuism 14. september 2018 var samkvæmt auglýsingu haldinn í Borgartúni 22. Þar á að hafa verið kjörin ný stjórn en ekki hefur komið fram hverjir skipa nýju stjórnina.VísirFjölgaði úr fjórum í rúmlega þrjú þúsund á nokkrum vikum Gunnar Egill Egilsson, lögmaður Zuism, hélt því fram í dómsal í morgun að Ágúst Arnar, núverandi forstöðumaður Zuism, hefði ekki vitað af breytingum á skráningu forstöðumanns í félaginu fyrr en á seinni hluta árs 2015. Hann hafi þá gert kröfu um að það yrði leiðrétt. Um svipað leyti voru zúistar farnir að berast nokkuð á í fjölmiðlum. Þannig vakti mikla athygli þegar hópurinn undir forystu Ísaks Andra auglýsti í nóvember 2015 að Zuism hygðist endurgreiða félagsmönnum sóknargjöld sem félagið fengi frá ríkinu. Við það snarfjölgaði félagsmönnum. Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru þannig fjórir skráðir í Zuism 1. janúar árið 2015. Ári síðar, um tveimur mánuðum eftir loforðið um endurgreiðslu sóknargjaldanna, voru þeir orðnir 3.087 talsins. Fjárhagur Zuism tók einnig stakkaskiptum við þessa sprengingu í félagafjölda. Sóknargjöld sem ríkið greiddi Zuism fyrir árið 2015 og byggði á félagafjölda 1. desember árið 2014 námu 29.664 krónum vegna þriggja félagsmanna. Ári síðar átti Zuism rétt á rúmum 32 milljónum króna frá ríkinu vegna þeirrar miklu fjölgunar félagsmanna sem hafði átt sér stað í millitíðinni. Engu að síður hafnaði Gunnar Egill, lögmaður Zuism, því í héraðsdómi í morgun að sannað væri að fjölgun félagsmanna hefði haft nokkuð að gera með Ísak Andra og hópinn sem lofaði endurgreiðslu sóknargjalda. „Það gat allt eins verið flótti úr þjóðkirkjunni,“ sagði lögmaðurinn sem taldi annað „yfirlætisleg“ rök ríkislögmanns.Gunnar Egill Egilsson (í forgrunni til hægri, lögmaður Zuism. Myndin er úr safni og tengist ekki efni fréttarinnar.Vísir/AntonSakar fulltrúa sýslumanns um ýmis brot Gunnar Egill setti fram alvarlegar ásakanir á hendur Halldóri Þormari Halldórssyni, lögfræðingi sýslumannsembættisins á Norðurlandi eystra, í málflutningsræðu sinni. Sakaði hann Halldór Þormar um að hafa unnið með Ísaki Andra og félögum hans að yfirtöku Zuism, um að hafa borið ljúgvtni, eytt opinberum gögnum og hunsað erindi Ágústs Arnars ítrekað. Eiríkur Áki Eggertsson, lögmaður ríkisins, fullyrti á móti að athugun á hver færi með yfirráð í Zuism sem olli því að sóknargjöldum var haldið eftir hafi verið lögmæt. Óvissan um yfirráðin hafi verið tilkomin vegna þess að núverandi stjórnendur Zuism hefðu látið hjá líða að tilkynna sýslumanni um nýjan forstöðumann eftir starfslok upphaflegs forstöðumanns í lok árs 2013 og að skila öðrum gögnum sem þeim bar. Þá hafi fjöldi félagsmanna verið talinn undir lögmætum viðmiðum. Þetta er í annað skipti sem mál Zuism um dráttarvexti og skaðabætur er höfðað. Héraðsdómur sýknaði ríkið af kröfunum í febrúar árið 2017. Landsréttur vísaði dráttarvaxtakröfunni aftur heim í hérað en staðfesti frávísun kröfunnar um viðurkenningu skaðabótaskyldu. Kröfurnar tvær voru sameinaðar aftur við núverandi meðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur.Einar Ágústsson var skráður í stjórn Zuism að minnsta kosti svo seint sem í árslok 2017. Hann hlaut þriggja ára og níu mánaða fangelsisdóm fyrir fjársvik í fyrra.SkjáskotTveir núverandi og fyrrverandi stjórnendur hlotið þunga dóma Zuism hlaut skráningu sem trúfélag árið 2013 eftir að álitsnefnd innanríkisráðuneytisins hafði áður mælt með því að umsókn þess yrði hafnað í tvígang. Í upphafi var Ólafur Helgi Þorgrímsson skráður forstöðumaður félagsins og bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir stjórnarmenn. Lögmaður Zuism viðurkenndi í morgun að sýslumanni hafi ekki verið send tilkynning um nýjan forstöðumann eftir fráhvarf Ólafs Helga og þar til Ágúst Arnar krafðist þess að vera skráður forstöðumaður árið 2015. Aldrei voru fleiri en fjórir skráðir í félagið eftir stofnun og þar til hópurinn undir forystu Ísaks Andra tók tímabundið við árið 2015. Ólafur Helgi óskaði eftir því að vera afskráður forstöðumaður í febrúar árið 2014. Hann hefur sagst ótengdur félaginu síðan. Héraðsdómur Reykjaness dæmdi Ólaf Helga í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 143,4 milljónir króna vegna meiriháttar skattalagabrota í tengslum við ferðaþjónustufyrirtækið Ævintýrareisur í júní. Í Firmaskrá Íslands er Zuism enn skráð til heimilis að Askalind 8 í Kópavogi. Það er sama heimilisfang og fyrirtækisins Luxury Adventurs þar sem Ólafur Helgi er einn eigenda. Í óskildu máli var Einar Ágústsson dæmdur í þriggja ára og níu mánaða fangelsi fyrir að svíkja um 74 milljónir króna út úr fjórum einstaklingum í Landsrétti í fyrra. Einar sat enn í stjórn Zuism árið 2017 samkvæmt nýlegustu upplýsingum um stjórn félagsins sem Vísir hefur getað nálgast til þessa. Saman hafa Einar og Ágúst Arnar verið nefndir Kickstarter-bræður í fjölmiðlum vegna umdeildra safnana þeirra á fjáröflunarsíðunni Kickstarter fyrir ýmsum nýsköpunarverkefnum. Kickstarter lokaði einni slíkri söfnun vegna samstarfs fyrirtækisins við löggæsluaðila á Íslandi. Bræðurnir voru báðir rannsakaðir vegna meintra fjárglæpa sem tengdust fjárfestingarleið Seðlabankans á þeim tíma sem gjaldeyrishöft voru við líði. Ágúst var aldrei ákærður.Trúfélagið Zuism er skráð með lögheimili að Nethyl 2b en umsjónamaður skrifstofugarða þar sagði Vísi í fyrra að trúfélagið hafi aldrei haft starfsemi þar.Vísir/VilhelmMilljóna tap og engin merki um starfsemi Eftir að Ágúst Arnar var viðurkenndur forstöðumaður Zuism í september 2017 tók hann upp loforð Ísaks Andra og félaga um endurgreiðslur á sóknargjöldum. Ágúst Arnar hefur hins vegar aldrei viljað upplýsa um umfang endurgreiðslnanna. Félagið hefur frá 2017 til byrjun árs 2019 fengið tugi milljóna króna í sóknargjöld frá ríkinu.Engin starfsemi virðist fara fram á vegum Zuism og félagið virðist án húsnæðis. Það er enn skráð með lögheimili að Nethyl þar sem Vísir hefur fengið staðfest að félagið rak aldrei starfsemi. Þá hefur Ágúst Arnar ekki svarað ítrekuðum fyrirspurnum Vísis um fjárreiður Zuism. Í ársskýrslu sem Zuism skilaði sýslumanni fyrir árið 2017 kom fram að félagið hefði tapað um átta milljónum króna. Óskilgreind útgjöld félagsins voru þar sögð nema á fjórða tug milljóna króna. Í febrúar sendi Ágúst Arnar frá sér tilkynningu um að hann hefði stigið til hliðar sem forstöðumaður og að ný stjórn, sem hefði verið kjörin á aðalfundi í september í fyrra, ætlaði að auglýsa eftir nýjum. Eftir að í ljós kom að sýslumaður hafði látið stöðva greiðslu sóknargjalda til félagsins frá því í febrúar sagðist Ágúst Arnar ætla að stýra félaginu áfram í apríl. Aldrei hefur komið fram hverjir voru kjörnir í stjórn Zuism á aðalfundinum í september. Engar upplýsingar er að finna um það á vefsíðu Zuism né Facebook-síðu. Fyrirspurnum um hverjir skipa nýju stjórnina hefur ekki verið svarað.
Trúmál Zuism Tengdar fréttir Einn stofnenda Zuism dæmdur til að greiða 143 milljónir vegna skattsvika Ólafur Helgi Þorgrímsson var dæmdur í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að vanframtelja hundruð milljóna króna í rekstri ferðaskrifstofu hans. Hann þarf einnig að greiða 143 milljóna króna sekt eða sæta tæplega árs fangelsi ella. 26. júní 2019 08:40 Zúistum snarfækkaði eftir að þeir fengu skráningu sem trúfélag Ráðuneytið hafnaði umsókn zúista um skráningu trúfélags í tvígang áður en fallist var á hana. Rúmlega 20 manns voru sagðir í félaginu í umsókninni en þeir voru aldrei fleiri en þrír til fjórir eftir að félagið var skráð sem trúfélag. 12. febrúar 2019 09:30 Zúistar töpuðu tæpum átta milljónum árið 2017 Trúfélagið Zuism var með hátt í 36 milljónir króna í útgjöld sem það flokkaði sem óvenjulega liði árið 2017. Félagið hefur fengið tuga milljóna króna frá ríkinu í formi sóknargjalda. 4. febrúar 2019 14:00 Forstöðumaður Zuism stígur til hliðar Þetta kemur fram í tilkynningu frá Zúistum. 4. febrúar 2019 11:47 Sýslumaður heldur eftir sóknargjöldum Zuism Eftirlitsaðili með starfsemi trúfélaga telur vafa leika því að Zuism uppfylli skilyrði laga. Félagið hefur stefnt íslenska ríkinu vegna vangoldinna sóknargjalda. 16. apríl 2019 21:00 Mál zúista gegn ríkinu vegna sóknargjalda tekið fyrir Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra hefur haldið eftir sóknargjöldum til Zuism frá áramótum vegna vafa um að félagið uppfylli skilyrði laga um starfsemi trúfélaga. 4. júlí 2019 10:44 Zúistar fá tugi milljóna frá ríkinu en finnast hvergi Að óbreyttu fær trúfélagið Zuism rúmar 20 milljónir króna frá ríkinu í formi sóknargjalda á næsta ári. Félagið virðist húsnæðislaust, með takmarkaða starfsemi og ekki næst í forsvarsmenn þess. 16. nóvember 2018 09:15 Mest lesið Kosningavaktin: Landsmenn kjósa sér nýtt þing Innlent Kanónurnar sem eru að hverfa Innlent Lokatölur í Reykjavík suður: Fyrrverandi borgarstjóri og ritstjóri á þing Innlent Lokatölur úr Reykjavík norður: Stórsigur Samfylkingarinnar Innlent Tárin streymdu þegar María Rut mældist inni Innlent „Afhroð vinstrisins er rosalegt“ Innlent Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sigur Flokks fólksins Innlent Ungur maður og spenntur fyrir framtíðinni Innlent „Ég byrja harður og svo er ég bara grillaður í restina“ Innlent „Ég get ekki hugsað mér að fleiri börn lendi í honum“ Innlent Fleiri fréttir Nú reynir á konurnar þrjár Formenn flokkanna í Sprengisandi „Afhroð vinstrisins er rosalegt“ Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sigur Flokks fólksins „Ég byrja harður og svo er ég bara grillaður í restina“ Reyndi að brjótast inn með exi Lokatölur úr Reykjavík norður: Stórsigur Samfylkingarinnar Lokatölur í Reykjavík suður: Fyrrverandi borgarstjóri og ritstjóri á þing Kanónurnar sem eru að hverfa Ungur maður og spenntur fyrir framtíðinni Tárin streymdu þegar María Rut mældist inni Flokkurinn verði að líta inn á við Stefnir í að flokkunum fækki um tvo Flokkur fólksins í gríðarlegri sókn í Norðvesturkjördæmi Vísbending um að þetta séu „jarðskjálftakosningar“ Samfylkingin langstærst í kjördæmi Kristrúnar Stefnir í að VG þurrkist út af þingi Gríðarlega mikið fylgi sem dettur niður dautt Ljóst að þetta yrði brekka fyrir Framsókn Sjálfstæðisflokkur og Samfylking ná bæði fjórum inn í Kraganum „Ég veit ekki hvort ég er að koma eða fara“ Merkir hægribylgju en ekki vonbrigði Glaður maður en býst við batnandi tölum Samfylkingin og Flokkur fólksins bæta miklu við sig Sagði sínu fólki að tala ekki illa um aðra flokka Trúir því að fólk sé að detta VG megin í kjörklefanum Vegabréfið fór með atkvæðinu í kjörkassann „Ég trúi því að þjóðin sé að opna augun“ Viðbúið að talning tefjist í einhverjum kjördæmum Þriggja bíla árekstur og mikil umferðarteppa Sjá meira
Einn stofnenda Zuism dæmdur til að greiða 143 milljónir vegna skattsvika Ólafur Helgi Þorgrímsson var dæmdur í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að vanframtelja hundruð milljóna króna í rekstri ferðaskrifstofu hans. Hann þarf einnig að greiða 143 milljóna króna sekt eða sæta tæplega árs fangelsi ella. 26. júní 2019 08:40
Zúistum snarfækkaði eftir að þeir fengu skráningu sem trúfélag Ráðuneytið hafnaði umsókn zúista um skráningu trúfélags í tvígang áður en fallist var á hana. Rúmlega 20 manns voru sagðir í félaginu í umsókninni en þeir voru aldrei fleiri en þrír til fjórir eftir að félagið var skráð sem trúfélag. 12. febrúar 2019 09:30
Zúistar töpuðu tæpum átta milljónum árið 2017 Trúfélagið Zuism var með hátt í 36 milljónir króna í útgjöld sem það flokkaði sem óvenjulega liði árið 2017. Félagið hefur fengið tuga milljóna króna frá ríkinu í formi sóknargjalda. 4. febrúar 2019 14:00
Forstöðumaður Zuism stígur til hliðar Þetta kemur fram í tilkynningu frá Zúistum. 4. febrúar 2019 11:47
Sýslumaður heldur eftir sóknargjöldum Zuism Eftirlitsaðili með starfsemi trúfélaga telur vafa leika því að Zuism uppfylli skilyrði laga. Félagið hefur stefnt íslenska ríkinu vegna vangoldinna sóknargjalda. 16. apríl 2019 21:00
Mál zúista gegn ríkinu vegna sóknargjalda tekið fyrir Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra hefur haldið eftir sóknargjöldum til Zuism frá áramótum vegna vafa um að félagið uppfylli skilyrði laga um starfsemi trúfélaga. 4. júlí 2019 10:44
Zúistar fá tugi milljóna frá ríkinu en finnast hvergi Að óbreyttu fær trúfélagið Zuism rúmar 20 milljónir króna frá ríkinu í formi sóknargjalda á næsta ári. Félagið virðist húsnæðislaust, með takmarkaða starfsemi og ekki næst í forsvarsmenn þess. 16. nóvember 2018 09:15