Skoðun

Martröð fram haldið

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Sex ungmenni voru handtekin á árunum 1975 og 1976 í tengslum við mannshvörf Guðmundar og Geirfinns. Mál sem áttu eftir að liggja eins og mara á þjóðinni í áratugi á eftir. Ungmennin brotnuðu í einangrunarvistinni og játuðu á sig glæpi sem upp á þau voru bornir en báru þá von í brjósti að hið sanna kæmi í ljós þegar málið kæmi fyrir dóm. Á morgun er slétt ár síðan Hæstiréttur sýknaði fimm sakborninga af öllum ákæruliðum í málunum. Stjórnmálamenn og aðrir kepptust við að stíga fram og lýsa því yfir að loks hefði réttlætið sigrað; að ekki hefði staðið steinn yfir steini í meðferð réttarkerfis okkar á sakborningum í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum.

Þetta blað sló við sýknudóminn upp forsíðufyrirsögn sem sagði „Martröð er létt af þjóðinni“ eftir tilfinningaríkan dag í Hæstarétti. Það, heilum fjórum áratugum eftir að Ólafur Jóhannesson, þáverandi dómsmálaráðherra, lýsti því yfir við lok rannsóknar lögreglu á mannshvörfunum að martröð hefði þá verið létt af þjóðinni. Loks var hægt að taka undir þau orð, þó merkingunni hefði verið snúið á haus.

Ríkið krefst nú sýknu af bótakröfum Guðjóns Skarphéðinssonar, eins þeirra sem voru sýknaðir fyrir ári af því að hafa átt þátt í að verða Geirfinni að bana. Enn fremur krefst ríkið þess að Guðjón verði dæmdur til að greiða ríkinu málskostnað.

Guðjón höfðaði einkamál eftir að sáttaumleitanir ríkisins við fórnarlömbin um sanngirnisbætur runnu út í sandinn. Hann fer fram á háar bætur, rúmlega 1,3 milljarða króna, en þær pyntingar sem hann mátti þola eru ólýsanlegar. Ólögleg frelsissvipting, rangir dómar, ólögmætar rannsóknaraðgerðir, ómannúðleg meðferð og ítrekuð brot gegn mannlegri reisn hans. Réttarkerfið í sinni verstu mynd.

Vandasamt er að setja verðmiða á slíka lífsreynslu og um upphæðir má þrátta. Ríkið hins vegar hafnar öllum málatilbúnaði Guðjóns. Dómkrafa hans sé fyrnd. Hann hafi sjálfur stuðlað að þeim aðgerðum sem hann reisir bótakröfuna á. Ríkislögmaður bítur svo höfuðið af skömminni með því að vísa til málsatvika eins og þeim er lýst í sakfellingardómi í málinu frá 1980. Sérfræðiálit um falskar játningar sem knúnar voru fram telur hann ekkert sönnunargildi hafa. Þras ríkisins í máli Guðjóns hljómar eins og þráhyggja eftir allt sem á undan er gengið.

Arftakar ömurlegs kerfis sem kallaði ólýsanlegan harm yfir fjölda fólks mann fram af manni í fjörutíu ár eiga að sýna iðrun, ábyrgð og yfirbót fyrir verk fyrirrennara sinna. Voðaverk kerfisins blasa við.

Ef forsætisráðherra ber ekki gæfu til þess að stíga inn og gera sómasamlega við fólkið sem mátti þola ógeðfellt ranglæti af hálfu meingallaðs kerfis, má hún hafa ævarandi skömm fyrir.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×