Skoðun

Góða fólkið fundar

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Í gær var málamyndasamkomulag um ofbeldislausa skemmtistaði undirritað. Samhliða var þýðingarlaust samkomulag gert um vændislaus hótel. Reykjavíkurborg, Samtök ferðaþjónustu fyrir hönd skemmtistaða, lögreglan og slökkviliðið taka höndum saman um þessi háleitu markmið. Hin svokallaða ofbeldisvarnarnefnd borgarinnar ber ábyrgð á utanumhaldi. „Stefnt er að því að fyrirbyggja allt mögulegt ofbeldi á skemmtistöðum, þar með talda kynferðislega og kynbundið áreitni, vændi og mansal.“

Til að ná fram göfugum markmiðunum treysta aðilar samkomulags á stefnugerð, samvinnu og ársfjórðungslega fundi. Þá er því beint að þeim sem reka skemmtistaði og hafa lifibrauð sitt af vínsölu að „afgreiða ekki áfengi til þeirra sem sýnilega eru ölvaðir“.

Tilefnið er ærið. En ef hægt væri að semja sig frá mannlegum harmleik í Ráðhúsinu væri Ísland vímuefnalaust, ungmenni myndu öll stunda hópíþróttir og stjórnmálamenn gætu samið um að hér fyndu allir hamingjuna.

Sannað er að gríðarlegt framboð af vændi sé í Reykjavík. Samt er áratugur frá því að lög tóku gildi um málaflokkinn sem áttu að ná til fólks í vændi og auðvelda því leið út. Hvorki virðist hafa gengið né rekið í þeirri baráttu, þótt margir mætir hafi reynt. Nú ætla embættismenn sér að hittast fjórum sinnum á ári til þess að uppræta þau þjóðfélagslegu mein sem engu ríki hefur lánast að uppræta. Kannski hefur samt best tekist til í Hollandi, þar sem vændi er löglegt og ekki úthýst þangað sem enginn sér.

Ekki skal gert lítið úr því að viðfangsefnið er flókið og stórt. Fullkomið skilningsleysi á aðstæðum fólks sem stundar vændi eða beitir ofbeldi er hins vegar nánast áþreifanlegt með málamyndaaðgerðum sem þessum. Rót vandans, í flestum tilfellum, er fíkn. Fíklar heyja baráttu fyrir lífi sínu á hverjum degi. Oft þurfa þeir að verða sér úti um efni eftir ógeðfelldum leiðum, vændi og afbrotum. Efnin eru dýr og oft keypt á svörtum markaði í undirheimum þar sem fáir sjá til og ofbeldi þrífst. Fíklarnir fá enga innihaldslýsingu á efnunum.

Heillavænlegra skref þeirra sem vettlingi geta valdið væri að útvega þeim lengst leiddu fíkniefnin eftir löglegum leiðum og uppi á borðum, opna neyslurými og fjölga skaðaminnkandi úrræðum. Sjálfboðaliðaverkefni á borð við Frú Ragnheiði, þar sem áhersla er lögð á að minnka skaðann sem hlýst af fíkniefnaneyslu, með því að útvega hreinar nálar, aðhlynningu og spjall, eru ómetanleg. Með aðgerðum í þá átt mætti bjarga mannslífum og koma í veg fyrir óhamingju.

Þessi meinta góðmennska fer hins vegar á hilluna við hliðina á öðru fáránlegu samkomulagi sem kvað á um „Fíkniefnalaust Ísland árið 2000“.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×