Skoðun

Ekkert að frétta

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Hlé var gert á þingstörfum í byrjun júní og þar með ákveðið að draga einhverja þá langdregnustu þingsályktunartillögu sem sögur fara af enn á langinn. Fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins sagði við tilefnið of auðvelt að taka þingið í gíslingu en þingmenn Miðflokksins höfðu, líkt og frægt er orðið, haldið uppi miklu málþófi dagana áður.

Formaður Miðflokksins fagnaði því við þinglok að loks gæfist ráðrúm til að skoða orkupakkamálin betur þrátt fyrir að formaður utanríkismálanefndar hefði sýnt efasemdarmönnum mikla, og reyndar sjálfsagða, kurteisi með því að kalla fyrir nefndina fjöldann allan af gestum, sem reifuðu allar staðreyndir málsins fram og aftur.

Nú þegar sumarfríi þingmanna er lokið og tími Miðflokksins kominn kemur því nokkuð á óvart að nákvæmlega ekkert nýtt komi fram í málflutningi Miðflokksmanna á þinginu um orkupakkann.

Vert er að draga fram aðalatriði málsins sem andstæðingar pakkans, hvar sem þeir kunna að standa í stjórnmálum, halda fram:

1. Með innleiðingu orkupakka þrjú er ekkert vald framselt til erlendra stofnana.

2. Ekkert í orkupakka þrjú skuldbindur Íslendinga til að leggja eða samþykkja sæstreng.

3. Íslenska ríkinu er í sjálfsvald sett hvort áfram verði virkjað hér landi, hvað sem orkupakkanum líður.

4. Erfitt er að sjá hvernig verið sé að fara gegn stjórnarskránni með innleiðingunni.

5. Innleiðing pakkans mun ekki leiða til hærra orkuverðs, nema síður sé.

6. Með orkupakka þrjú er ekki verið að skylda hið opinbera til þess að einkavæða raforkustofnanir.

Með þessi atriði fyrir augum er erfitt að sjá frá hverju nákvæmlega andstæðingar orkupakkans vilja undanþágu, nema að um sé að ræða einfaldlega undanþágu frá alþjóðasamstarfi. Engu er líkara en að menn slái vísvitandi ryki í augu fólks.

Í alvöru könnunum þar sem spurt hefur verið um málið hefur komið í ljós að margir landsmenn vilja ekki að Alþingi samþykki orkupakkann. Þar kemur einnig fram að meirihluti landsmanna hefur ekki kynnt sér málið eða kynnt sér það illa. Sérstaka athygli vekur að stuðningur við pakkann eykst eftir því sem fólk hefur kynnt sér málið betur.

Það er mikilvægt að kjörnir fulltrúar fari rétt með staðreyndir mála. Skemmst er að minnast framgöngu formanns Flokks fólksins í Silfrinu í vor þar sem hún hélt því fram að með innleiðingu orkupakkans gætu landsmenn sjálfir vaðið í að virkja ár og lagt sæstreng án nokkurra opinberra afskipta. Það, eins og svo margt í umræðunni um þetta mál, er þvæla.

Sennilega voru það stór mistök af hálfu ríkisstjórnarinnar að framlengja bullið og afgreiða ekki málið strax í vor. Hættan er að fólk fari að trúa rangfærslunum eftir því sem þær eru oftar þuldar upp. Ekki þarf að líta langt yfir hafið til að sjá stjórnmálamenn í æðstu embættum sem skeyta engu um sannleikann.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×