Tvö heimsmet Phelps slegin á síðustu þremur dögum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. júlí 2019 18:00 Dressel fagnar heimsmetinu í 100 metra flugsundi. vísir/getty
Tvö tíu ára gömul heimsmet Michaels Phelps hafa verið slegin á síðustu þremur dögum á HM í 50 metra laug í Gwangju í Suður-Kóreu.Á miðvikudaginn sló Kristóf Milák, 19 ára Ungverji, heimsmet Phelps í 200 metra flugsundi um 78 hundraðshluta úr sekúndu. Í dag sló Caeleb Dressel svo heimsmet Phelphs í 100 metra flugsundi. Dressel, sem er 22 ára Bandaríkjamaður, synti á 49,50 sekúndum í undanúrslitunum í 100 metra flugsundi og bætti heimsmet Phelps um 32 hundraðshluta úr sekúndu. Dressel var langt á undan næsta manni, Andrey Minakov, sem synti á 50,94 sekúndum og setti rússneskt met. Dressel og Phelps þekkjast vel en þeir saman unnu þeir til tvennra gullverðlauna í boðsundi á Ólympíuleikunum í Ríó 2016. Dressel vann til sjö gullverðlauna á HM í 50 metra laug í Búdapest í Ungverjalandi fyrir tveimur árum, þ.á.m. í 100 metra flugsundi. Þá synti hann á 49,86 sekúndum í úrslitunum. Dressel og Phelps eru einu sundmennirnir sem hafa unnið sjö gullverðlaun á einu heimsmeistaramóti. Dressel er þegar búinn að vinna til þrennra gullverðlauna á HM 2019; í 50 metra flugsundi, 100 metra skriðsundi og 4x100 metra skriðsundi.
Sund Tengdar fréttir Táningur rústaði tíu ára heimsmeti Michael Phelps Ungverjinn Kristof Milak vann afrek dagsins á heimsmeistaramótinu í 50 metra laug í Gwangju í Suður-Kóreu þegar hann setti nýtt heimsmet í 200 metra flugsundi. 24. júlí 2019 12:45 Phelps missti heimsmetið sem hann var búinn að eiga í átján ár Afrek ungverska táningsins Kristof Milak á HM í sundi hefur vakið mikla athygli í sundheiminum. Hann rústaði heimsmeti sem flestir héldu að væri ekki í hættu. 25. júlí 2019 09:30 Mest lesið Átján ára vonarstjarna pílukastsins dæmd í átta ára bann Sport Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 19-30 | Heim af EM eftir kennslustund Handbolti Oft spurt hvernig sé að vinna með „fúla Íslendingnum“ Handbolti Hill hneykslaður: „Er Schumacher harmleikurinn ekki nóg fyrir sumt fólk?“ Formúla 1 Ómar Ingi ekki með á HM Handbolti Ómar með þrjú slitin liðbönd: „Líklegast er HM ekki möguleiki“ Handbolti Óánægður eftir brot á leikmanni Þóris: „Lífshættulegt“ Handbolti Þegar stelpurnar okkar unnu Þjóðverja Handbolti Grínaðist með 115 ákærur City: „Ég endurtek, þetta var grín“ Enski boltinn „Miklu betri og stærri þjálfarar en ég sem hafa verið reknir“ Körfubolti Fleiri fréttir Draumabyrjun hjá Nistelrooy „Fyrir mig var þetta gríðarlega erfitt“ Neuer sá rautt og Bayern enn á ný úr leik Tárvot Andrea: „Ógeðslega sár en stolt“ Elín Rósa: Við náðum okkar helsta markmiði „Ákveðinn í að láta þennan leik ekki sitja í mér“ „Langar svolítið að setja punktinn aftan við þetta mót“ „Er bara ekkert hjarta í liðinu til að klára svona“ Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 19-30 | Heim af EM eftir kennslustund Stórkostlegt svar Stólanna gegn toppliðinu Svona eru milliriðlar EM: Þórir byrjar á Dönum Uppgjörið: Keflavík - Aþena 74-59 | Meistararnir stungu af í seinni Stórsigur eftir erfiða tíma hjá Barcelona Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Færeyjum skellt af herraþjóðinni og Holland vann með tuttugu Elísa veik og ekki með Tíu sinnum betri handboltaferð en aðrir hafa farið í Dagar Perez hjá Red Bull virðast taldir „Við sjáum möguleika þarna“ Fær meira fyrir að tala í hálftíma en fyrir heilt tímabil í WNBA „Þær eru búnar að taka nokkra krísufundina“ Ómar með þrjú slitin liðbönd: „Líklegast er HM ekki möguleiki“ Útilokar ekki að Ómar Ingi verði með á HM Dramatískt mark Ísabellu tryggði Íslandi áfram Þegar stelpurnar okkar unnu Þjóðverja Ómar Ingi ekki með á HM „Þýska liðið er allt önnur skepna“ Grínaðist með 115 ákærur City: „Ég endurtek, þetta var grín“ „Förum léttar inn í þennan leik“ Átján ára vonarstjarna pílukastsins dæmd í átta ára bann Sjá meira
Táningur rústaði tíu ára heimsmeti Michael Phelps Ungverjinn Kristof Milak vann afrek dagsins á heimsmeistaramótinu í 50 metra laug í Gwangju í Suður-Kóreu þegar hann setti nýtt heimsmet í 200 metra flugsundi. 24. júlí 2019 12:45
Phelps missti heimsmetið sem hann var búinn að eiga í átján ár Afrek ungverska táningsins Kristof Milak á HM í sundi hefur vakið mikla athygli í sundheiminum. Hann rústaði heimsmeti sem flestir héldu að væri ekki í hættu. 25. júlí 2019 09:30