Skoðun

Vinstri græn eiga leik

Logi Einarsson skrifar
Nýjar yfirlýsingar um að setja eigi meira fé í málaflokk flóttafólks og rýmka reglur um efnismeðferð eru í sjálfu sér ánægjulegar en fela ekki í sér varanlega lausn á málefnum flóttabarna. Til þess þarf meiriháttar stefnubreytingu, en ekki bara flýta málsmeðferð og afgreiða börn svo hratt, til baka út úr tilveru okkar, að þau komi ekki róti á tilfinningar landans.

Samkvæmt reglugerð um útlendinga er t.d. enn, þrátt fyrir nýjustu breytingar, heimilt að senda börn til óöruggra landa. En alvarlegast er líklega að börn fá ekki sjálfstæða málsmeðferð. Tekin er afstaða til umsókna foreldra um vernd og síðan dregin sú ályktun að það sé barninu fyrir bestu að fylgja foreldrum. Krafan er að staða barna sé metin sérstaklega og þau fái þannig notið eigin mannréttinda.

Við þinglokasamning haustið 2017 gerðu formenn flokka samkomulag um að strax á nýju kjörtímabili yrði ráðist í endurskoðun útlendingalaga og framkvæmd þeirra. Meðal annars með tilliti til stöðu barna og fólks í viðkvæmri stöðu. Ríkisstjórnin hefur setið í eitt og hálft ár og ber því fulla ábyrgð á að árangur af þverpólitískri þingmannanefnd er enginn. Ekki er nóg með að þetta sleifarlag hafi verið látið viðgangast, heldur afgreiddi ríkisstjórnin nýtt frumvarp um útlendingalög þann 2. apríl, sem lagt var fram á Alþingi nokkrum dögum síðar. Í því er jafnvel gengið enn lengra í átt að ómannúðlegri stefnu og liðkað fyrir brottvísun barna. Auknir fjármunir og allur heimsins fagurgali duga því skammt ef meiningin er að herða enn á ómannúðlegri stefnu.

Ég geri mér grein fyrir því að hjónaband VG og Sjálfstæðisflokksins byggir frekar á hagkvæmnissjónarmiðum en ástríðu og eldheitri ást. En það þvingaði þau enginn í þetta samband og þau bera því fulla ábyrgð á þeim slæmu málamiðlunum sem í því eru gerð. VG á því tvo leiki í stöðunni: Að knýja fram manneskjulegar úrbætur á málefnum flóttafólks eða gera stefnu VG í málaflokkum fullkomlega marklausa.

Höfundur er formaður Samfylkingarinnar




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×