Skoðun

Með sól í sinni

Davíð Stefánsson skrifar
Í dag fögnum við 75 ára afmæli lýðveldis á Íslandi. Með gildistöku lýðveldisstjórnarskrár hinn 17. júní 1944 var konungdæmi á Íslandi endanlega afnumið en það hafði þá ríkt frá samþykkt Gamla sáttmála árið 1262-1264.

Það var ekki fjölmenn þjóð sem fagnaði á Þingvöllum fyrir 75 árum. Íslendingar voru þá aðeins um 126 þúsund. Þrátt fyrir það vantaði ekki stórhug og bjartsýni á það hverju sjálfstæð þjóð fengi áorkað. Þetta var forboði fagurs dags. Þá kvað Hulda: „Syng, frelsissöngva, frjálsa þjóð, við fánans bjarta þyt.“

Þroskasaga smáþjóðarinnar hefur einkennst af ótrúlegum breytingum og framförum bæði í efnahagslegu og menningarlegu tilliti. Af því eigum við að vera stolt enda er þjóðrækni ekki þjóðremba.

Blómlegt atvinnulíf, menningarlíf og menntakerfi varð okkur aflvaki til að byggja hér farsælt samfélag. Frjálst athafnalíf varð lykill að lífskjörum þjóðarinnar.

Íslenskir leiðtogar og þjóðin sjálf skildu að eyjan Ísland ætti ekki að vera eyland í samfélagi þjóðanna. Tækifæri smáþjóða til áhrifa og aukinnar hagsældar lægju í frjálsum viðskiptum og samvinnu við aðrar þjóðir. Ísland ætti samleið með Evrópu.

Í mörgu er Ísland fyrirmynd annarra þjóða. Á Íslandi er til að mynda fyrirmyndarhagkerfi á mælikvörðum hagvaxtar og ýmissa félagslegra þátta. Hér njóta fleiri efnahagslegs ávinnings en víða annars staðar. Hér er auk þess jöfnuður meiri en í flestum ríkjum og fátækt er minni en í velferðarríkjum Noregs, Finnlands og Svíþjóðar. Jöfnuður milli kynslóða er meiri en víðast hvar. Þá eru Íslendingar leiðandi meðal þjóða í jafnréttismálum.

Þjóðhátíðardagur er dagur æskunnar. Þegar horft er til hennar er fullt tilefni til bjartsýni. Heimurinn er allur undir. Unga kynslóðin er uppfull af hugmyndum, baráttugleði og víðsýni með skilning á því að verkefni framtíðarinnar á borð við umhverfismál, verði ekki leyst nema með samvinnu þjóða.

Ekki má þó gleyma þeim sem eldri eru. Það ætti að vera okkur áleitin spurning hvernig við ávöxtum þann arf, sem liðnar kynslóðir hafa skilað okkur. Þær kynslóðir sem lögðu þennan góða grunn mættu njóta meiri virðingar. Við eigum þeirra framfarahug og bjartsýni mikið að þakka. Enda var það svo að þrátt fyrir votviðrið á Þingvöllum þennan dag fyrir 75 árum var sól í sinni.

Það er enn litlum þjóðum mikilvægt.

Gleðilega þjóðhátíð.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×