Skoðun

Dubbaður upp

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Lágkúrulegu fyllirísrausi sex þingmanna sem tekið var upp á barnum Klaustri hefur nú verið vísað í kerfisfarveg í þinginu. Siðanefnd ætlar sér að afgreiða erindið fljótt. Ekki er ljóst hverju það bætir við það sem almenningur veit nú þegar, sem hefur heyrt eða lesið um samtölin og situr eftir með óbragð í munni, en einhverra aðgerða er þörf til að gera starfsandann á þinginu bærilegri. Þó ekki sé nema að búa til ferla ef sambærilegt mál skyldi koma upp síðar.

Viðfangsefnið er flókið. Vitaskuld áttu samtöl um pólitísk hrossakaup og kvenfyrirlitningu erindi við almenning, þótt það sé erfitt til þess að hugsa að menn geti átt von á því að samtöl þeirra séu tekin upp án þeirra vitundar.

En upptökur af þessu tagi eru hluti af breyttum heimi og sennilega munum við sjá fleiri slíkar á næstunni líkt og við þekkjum frá útlöndum. Það breytir ekki því, að fyrir vikið eiga margir nú um sárt að binda, einkum þær konur sem lentu í skotlínu byssukjaftanna á Klaustri.

Subbutalið á barnum er fyrst og síðast fátæklegt. Það hefur minnst að gera með þá sem urðu fyrir barðinu á þingmönnunum. Tal af þessu tagi afhjúpar minnimáttarkennd þeirra sem hafa orðið.

Utanríkisráðherrann fyrrverandi, Gunnar Bragi Sveinsson, gekk lengst, ásamt Bergþóri Ólasyni. Gunnar Bragi var í ráðherratíð sinni dubbaður upp í hlutverk sem boðberi jafnréttis – sérstakur talsmaður átaka á borð við Barber Shop og #HeForShe. Hlutverk sem virðist með engu móti eiga skírskotun í hans eigin hugarheimi. Hann virðist hafa verið strengjabrúða embættismanna sem lögðu honum í hendur texta sem hann annaðhvort skildi ekki eða hafnaði, þrátt fyrir leikþættina.

Krafa um afsögn þessa fólks heyrist nú víða, meðal annars á þinginu. Sumir þingmenn ganga of langt í þeim efnum og reyna að upphefja sjálfa sig á kostnað þeirra þingmanna sem höfðu sig mest í frammi á Klaustri. Það er ódýrt, þrátt fyrir særindin. Aðrir eru eðlilega sárir og hissa á kollegum sínum. Það eru sennilega heilbrigðari viðbrögð. Gamla sagan, úlfur, úlfur, á það til að drepa alvöru málum á dreif. Kröfur um afsögn hljóma þessi misserin eins og síbylja. Stundum eru tilefni, líkt og raunin er nú, en oftar engin.

Auðvitað hlýtur sexmenningunum að líða illa með gjörðir sínar og orðfæri. Án efa er þetta fólk sem vill láta gott af sér leiða og telur sig eiga erindi í stjórnmál. Því varð á. Ábyrgðin er þess.

Hins vegar rekur enginn þingmann úr starfi, þvert á það sem sumir virðast halda, nema kjósendur á fjögurra ára fresti. Sjálfir geta þingmennirnir þó hugsað sér til hreyfings. Þar þurfa þeir að svara eigin samvisku.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×