Héraðsdómur Reykjaness hafnaði í dag frávísunarkröfu fimm sakborninga af sjö í Bitcoin-málinu svonefnda þar sem sjö karlmenn eru grunaðir um aðild að einu stærsta þjófnaðarmáli Íslandssögunnar. Alda Hrönn Jóhannesdóttir, saksóknari hjá lögreglunni á Suðurnesjum, staðfestir þetta í samtali við Vísi. Enginn sakborninganna var viðstaddur uppkvaðningu úrskurðarins í dag samkvæmt upplýsingum RÚV.
Frávísunarkrafan var lögð fram við fyrirtöku málsins í síðustu viku. Þar sögðu fjórir verjendur að þeir hefðu fengið takmarkaðan aðgang að gögnum málsins. Verjendur tveggja, þeirra Matthíasar Jóns Karlssonar og Sindra Þórs Stefánssonar, sem sátu lengst í gæsluvarðhaldi, sögðu að raunverulegt markmið varðhaldsins hafi verið að brjóta þá niður svo þeir myndu láta af rétti sínum til þess að neita að tjá sig.
Í málflutningi á föstudag kvaðst Alda Hrönn Jónsdóttir, aðstoðarsaksóknari hjá lögreglunni á Suðurnesjum, ekki ætla að fara mörgum orðum um gæsluvarðhaldið. Fráleitt væri að fara fram á frávísun á grundvelli atriða sem staðfestir hefðu verið með dómum.
Bitcoin-málið hefur verið kallað einn stærsti þjófnaður Íslandssögunnar en þeir Matthías Jón og Sindri Þór eru meðal annars ákærðir fyrir stórfelldan þjófnað úr gagnaverum í Reykjanesbæ og Borgarnesi ásamt Pétri Stanislav Karlssyni. Meint brot þeirra voru framin í desember og janúar síðastliðnum og geta varðað allt að sex ára fangelsi samkvæmt hegningarlögum.
Aðalmeðferð málsins er fyrirhuguð þann 3. desember. Lögmenn sakborninanna fimm sem kröfðust frávísunar hafa þrjá sólarhringa til að kæra úrskurðinn til Landsréttar, hugnist þeim það.
Fengu nei við frávísunarkröfu í Bitcoin-málinu
Tengdar fréttir
Tekjulaus en með milljón undir rúminu og hálfa í rassvasanum
Hafþór Logi Hlynsson neitar sök í máli héraðssaksóknara á hendur sér fyrir peningaþvætti.
Sindri Þór reiddi fram 2,5 milljónir króna fyrir að losna úr farbanni
Fór til Spánar til að sinna fjölskyldunni.
Sindri Þór reiddi fram tryggingu og fór til Spánar til að sinna fjölskyldunni
Búist við að hann verði viðstaddur aðalmeðferð málsins.
Bitcoin-málið: Einn kveðst vera með fjarvistarsönnun og annar mætti ekki í skýrslutöku
Bitcoin-málið hefur verið kallað einn stærsti þjófnaður Íslandssögunnar.