Skoðun

Glæpur gegn mannkyni

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar

„Við grétum þegar við flúðum. Afrakstur 25 ára erfiðisvinnu tapaðist. Tími minn er senn á enda, en hvað verður um börn mín og barnabörn?“ „Það hlupu allir eins og fætur toguðu til að sleppa á lífi. Ég gat ekki einu sinni borið börnin mín.“ „Ég var heppin. Það nauðguðu mér bara þrír menn.“

Þetta er aðeins brotabrot af þeim hörmungum sem fórnarlömb þjóðernishreinsana mjanmarska hersins lýstu fyrir rannsakendum á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna. Skýrslan var birt í gær og fjallað er um hana Fréttablaðinu í dag.

Raunir Róhingja í Mjanmar frá því að hreinsanirnar miklu hófust í ágúst á síðasta ári eru nú þegar orðnar að einhverjum mestu hörmungum samtímans. Á upplýsingaöld, þegar við ættum með réttu að vera tengdari hvert öðru, upplýstari um raunir annarra og full hluttekningar í garð bræðra okkar og systra, hafa Róhingjar af einhverjum ástæðum mætt afgangi.

Þetta agnarsmáa þjóðarbrot, í kringum 1,5 til 2 milljónir manna í Mjanmar og Bangladess, er alvant því að heimsbyggðin láti sér á sama standa. Undanfarna áratugi hafa Róhingjar þurft að þola útskúfun, ofbeldi, skert mannréttindi og svikin loforð. Róhingjar börðust við hlið Breta í seinna stríði, en fengu hvorki uppfyllt loforðið um sjálfstæði né viðurkenningu alþjóðasamfélagsins.

Hörmungarnar nú eiga rætur að rekja til atburða í ágúst á síðasta ári þegar herskáir Róhingjar gerðu mannskæðar árásir á herstöðvar í Mjanmar. Svar mjanmarskra yfirvalda var þjóðernishreinsun. Í kringum sjö hundruð þúsund Róhingjar flúðu hreinsanirnar yfir landamærin að Bangladess.

Hershöfðingjar og leiðtogar Mjanmar, þar á meðal Aung San Suu Kyi, handhafi friðarverðlauna Nóbels, hafna því að þjóðernishreinsanir eigi sér stað. Þau hafa hótað að fangelsa blaðamenn sem freista þess að varpa ljósi á stöðu mála.

Niðurstaða skýrslu rannsóknarnefndar Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna staðfestir það sem margir hafa haldið fram, en fáir viljað segja upphátt. Yfirvöld í Mjanmar hafa orðið uppvís að einhverjum skelfilegustu glæpum gegn mannlegri reisn og tilvist sem um getur. Hópnauðganir á konum, barnsmorð, fjöldamorð og tortíming heilu þorpanna – allt eru þetta gjaldgengar aðferðir mjanmarskra yfirvalda til að ná markmiði sínu um útrýmingu Róhingja.

Alþjóðasakamáladómstóllinn var stofnaður til að draga þá til ábyrgðar sem brotið hafa gegn mannkyni. Ísland hefur verið meðal dyggustu stuðningsríkja dómstólsins og okkur ber að berjast fyrir því að þeir sem bera ábyrgð á voðaverkunum í Mjanmar verði látnir sæta ábyrgð, á sama tíma og við réttum fámennri þjóð Róhingja hjálparhönd.


Tengdar fréttir

Vilja ákæra fyrir glæpi gegn mannkyni

Mjanmarski herinn sakaður um ógeðfelld brot gegn Róhingjum. Rannsóknarnefnd SÞ mælir með því að herforingjar verði ákærðir fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×